fjármálastefna 2022--2026.
Forseti. Mér finnst merkilegt að hv. þingmanni finnist þetta vera bestu orðin í nefndarálitinu, ekki einu sinni tilvitnanirnar í fjármálastefnuna sjálfa eða álit meiri hlutans. Læt það hanga aðeins. (BHar: … þínum texta.) Já, það er heill hellingur af mínum texta þarna. Það er ekki rétt hjá hv. þingmanni að fjármálastefnan sé taflan sem þar er því að það er mjög skýrt að í fjármálastefnu, samkvæmt 4. gr. laga um opinber fjármál, á að vera stefna um umfang, afkomu og þróun eigna, skulda og langtímaskuldbindinga opinberra aðila í heild og það á að fylgja greinargerð um hvernig grunngildum skuli vera fylgt, bæði hvað varðar stefnumörkun um þróun gjalda og skattstefnu og aðra tekjuöflun hins opinbera. Það er í greinargerð, vissulega. En það er algerlega hluti af fjármálastefnunni að stjórnvöld útskýri nákvæmlega þessa töflu sem er þarna og áhrifin á stóru þjóðhagslegu stærðirnar sem fjallað er um í þjóðhagsspám Hagstofunnar. (Gripið fram í.) — Ég er að koma að því hérna. Ég held að þetta sé ekkert svo óraunhæf tafla þegar allt kemur til alls. Ég býst við að hún komi betur út en tölurnar sem eru hérna, einfaldlega af því að í hagspám er vanspáð um það hvernig þróun næstu ára verður. Við erum einfaldlega með (Forseti hringir.) þannig stjórnkerfi hérna, það er ógagnsætt og gefur ekki möguleika á því að einhver utan fjármálaráðuneytisins geti sett eitthvað gáfulegt fram um það, (Forseti hringir.) að ég get ómögulega sett fram einhverja töflu um þetta sjálfur. Ég get einungis gagnrýnt það hvað stjórnvöld sjálf gleyma að gera samkvæmt lögum um opinber fjármál.