152. löggjafarþing — 39. fundur,  22. feb. 2022.

fjármálastefna 2022--2026.

2. mál
[20:02]
Horfa

Frsm. 1. minni hluta fjárln. (Kristrún Frostadóttir) (Sf) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka hv. formanni fjárlaganefndar fyrir ræðuna og mig langaði til að fjalla aðeins meira um útgjaldasvigrúmið sem við ræddum aðeins áðan. Mér nefnilega misreiknaðist aðeins áðan. Ég talaði um 20 milljarða og það er ekki rétt hjá mér. Þá var ég að tala um 0,7% af landsframleiðslu en þetta eru 0,7% af útgjaldstofnunum eins og þeir eru í dag. Það eru því 8 milljarðar á ári árin 2023–2026 sem við erum að tala um, miðað við útreikninga fjármálaráðs, að sé svigrúmið til útgjaldaaukningar ef ég hef rétt fyrir mér. Sveitarfélögin vantar 9 milljarða þannig að ef ríkisstjórnin ætlar að bæta upp þetta gat hjá sveitarfélögunum þá er allt svigrúmið horfið 2023–2026.

Ég beini þeirri spurningu til hv nefndarformanns: Hvar á að skera niður til að koma þessum breytingum í gegn þegar fyrir liggur að málefni fatlaðs fólks verða ekki styrkt á sveitarfélagastiginu? Því ef þetta verður styrkt að fullu þá kemur ríkisstjórnin engum öðrum málefnum í gegn nema ráðast í niðurskurð. (Forseti hringir.) Hvar telur hún að megi skera niður?