152. löggjafarþing — 39. fundur,  22. feb. 2022.

fjármálastefna 2022--2026.

2. mál
[20:03]
Horfa

Bjarkey Gunnarsdóttir (Vg) (andsvar):

Virðulegur forseti. Eins og hv. þingmaður hefur kannski fengið svör við í dag þá tel ég að með því að hagkerfi okkar taki að vaxa og dafna aftur verði til það svigrúm sem þarf til þess að mæta þeim áskorunum sem fram undan eru. Eins og kemur líka fram í stjórnarsáttmála og í fjármálastefnunni eru auðvitað undir ákveðnar skattbreytingar og annað slíkt sem alls ekki er útilokað. Hér hafa ráðherrar líka farið yfir það að ef — já, það er ekkert ef heldur er gert ráð fyrir ákveðnum breytingum þar að lútandi. En fyrst og fremst byggjum við þetta á því að við reynum að finna hagræðingu í kerfinu án þess endilega að skera niður. Það þarf ekki að fylgja því að það verði skorið niður. Með því að hagvöxturinn verði aukinn, eins og við gerum ráð fyrir og eins og við sjáum nú þegar eiga sér stað, þá náum við að mæta þessu.