152. löggjafarþing — 39. fundur,  22. feb. 2022.

fjármálastefna 2022--2026.

2. mál
[20:06]
Horfa

Bjarkey Gunnarsdóttir (Vg) (andsvar):

Virðulegi forseti. Það má sannarlega segja að margt sé okkur hagfellt þó að ekki sé talað um annað en betri afkomu Landsvirkjunar. Það er aukinn arður í ríkissjóð og það eru ýmsar tekjur sem við fáum inn sem ég tel að geti hjálpað til við að mæta ýmsum þeim áskorunum sem fram undan eru.

Varðandi neysluskattana vil ég bara segja: Við erum auðvitað með virðisaukaskattinn og annað slíkt sem allir þurfa að greiða. Við erum búin að lækka hann niður í 11%. Hann er frekar lágur þannig að ég hef ekki miklar áhyggjur af því.

Varðandi bankaskattinn get ég alveg staðið hér og nefnt að ég hef talað fyrir því, sagði það á sínum tíma þegar hann var lækkaður, að ef við sæjum ekki að bankarnir skiluðu því til baka til fólksins væri ég tilbúin til að hækka þann skatt aftur. Ég hef alltaf talað fyrir því þó að það sé ekki endilega samhljómur innan allrar ríkisstjórnarinnar eða allra flokkanna um það. Það er bara eins og það er. En ég hef talað fyrir því og gerði það hér í pontu (Forseti hringir.) þegar sá skattur var lækkaður.