152. löggjafarþing — 39. fundur,  22. feb. 2022.

fjármálastefna 2022--2026.

2. mál
[20:15]
Horfa

Frsm. 2. minni hluta fjárln. (Eyjólfur Ármannsson) (Flf) (andsvar):

Forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir andsvarið. Í 2. tölulið 2. mgr. 4. gr. segir að það skuli vera greinargerð um hvernig grunngildum skv. 2. mgr. 6. gr. verði fylgt, bæði hvað varðar stefnumörkun um þróun gjalda og skattastefnu og aðra tekjuöflun hins opinbera — greinargerð um það. Ég get ekki lesið þetta öðruvísi en svo að greinargerðin eigi að vera í fjármálastefnunni sjálfri, eigi sem sagt að vera í tillögunni sjálfri en ekki greinargerð um tillöguna. Ég skil það þannig að greinargerðin sé í fjármálastefnunni, ekki greinargerð um fjármálastefnuna. Varðandi framsetninguna, það er sjálfsagt að breyta lögunum upp á skýrleika að gera en fyrir mér er greinargerð lögskýringargagn, greinargerð er skýringin á þingsályktunartillögunni. En ég ætla ekki að dvelja mikið við þetta en vonandi njótum við góðrar vinnu varðandi það.

Varðandi gullnu regluna og fjárfestingarnar, ESB, ætla ég rétt að vona að við búum til okkar eigin reglur. Við þurfum ekki að taka allt frá Brussel. Varðandi fjárhagslega arðsamar fjárfestingar tel ég mjög mikilvægt að (Forseti hringir.) jöfn búsetuskilyrði verði tekin þar inn sem veigamikill þáttur í fjárfestingum í landinu. Það er algjört grundvallaratriði þegar á að fara að taka á vanfjárfestingum.