fjármálastefna 2022--2026.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir ræðuna og langar til að grípa aðeins inn í umræðuna um stöðunni á vinnumarkaði vegna þess að það kemur þessari fjármálastefnu mjög mikið við. Launakostnaður er mjög stór partur af rekstrarkostnaði sveitarfélaga, 50%, það eru í kringum 30% hjá ríkinu. Ríkið hefur ítrekað vanreiknað þennan kostnað hjá sér. Við höfum sniðið okkur mjög þröngan stakk í þessari fjármálastefnu, 8 milljarða svigrúm núna. Á sama tíma er ekkert rætt um og virðist algjört áhugaleysi á að skoða úrræði sem gætu mögulega komið í veg fyrir að við fáum miklar launahækkanir í fangið í haust, vegna þess að húsnæðisverðshækkanir éta upp allan kaupmátt núna og við lendum í sama vítahring launahækkana. Ég ætla því að varpa þeirri spurningu og hugvekju til hv. þingmanns hvort það skorti þessa sýn inn í fjármálastefnuna, veruleikann á vinnumarkaði, og hvort fólk í fjármálaráðuneytinu og ríkisstjórninni sé svo upptekið við að plana eitthvað fram í tímann, eitthvað óljóst, einhvern ramma, að grundvallarforsendur hagstjórnarinnar í dag gleymist, sem eru að taka mið af stöðunni á vinnumarkaðnum, viðurkenna hagstjórnarmistök sem hafa átt sér stað m.a. á húsnæðismarkaði og taka ábyrgð núna. Vandinn er sá að þessi stefna er sprungin ef ekkert er að gert í dag. Mig langar til að heyra sjónarmið hv. þingmanns á mikilvægi aðgerða í dag til þess að koma í veg fyrir að þessi stefna springi strax í haust.