152. löggjafarþing — 39. fundur,  22. feb. 2022.

fjármálastefna 2022--2026.

2. mál
[20:52]
Horfa

Guðbrandur Einarsson (V) (andsvar):

Ég þakka hv. þingmanni fyrir andsvarið. Ég hef verulegar áhyggjur af þessu. Ég sjálfur starfaði á þessum vinnumarkaði í 20 ár, verandi formaður stéttarfélags, og mér finnst staðan núna að vera að teiknast upp eins og hún teiknaðist upp í gamla daga þegar við sáum verðbólgu aukast og grafa undan þeirri velferð sem fólk hafði reiknað með. Það er verið að henda því á borð fyrir okkur að opinberir aðilar séu að leiða launabreytingar, sem ég vil bara andmæla vegna þess að þegar farið var í að hækka lægstu laun hafði það mest áhrif, beit mest, þar sem laun voru lægst. Það var hjá BSRB- félögum og verkafólki innan sveitarfélaganna. Í prósentum virkaði það meira þar. Við vitum að það eru verulegar áskoranir fram undan hjá sveitarfélögunum. Kennararnir felldu t.d. nýverið kjarasamning sem byggði á lífskjarasamningi og eru núna í viðræðum um eitthvert framhald. Við vitum ekki hvað BHM gerir. Þeir hafa teiknað upp þá stefnu að vilja láta meta menntun til launa og vilja fá eitthvað aðeins fyrir sinn snúð. Svo erum við með þessa verðbólgu og það semur enginn um lægra en sem nemur verðbólgunni ef menn ætla að búa til kaupmátt. Já, ég hef miklar áhyggjur af þessu og þetta gæti valdið verulegum erfiðleikum þegar fram í sækir.