fjármálastefna 2022--2026.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir svarið og langar til að fylgja þessu eftir í tengslum við umræðuna sem var hér í upphafi varðandi skort á útgjalda- og tekjustefnu í þessari fjármálastefnu, hvort það sé skoðun hv. þingmanns að ef það hefði til að mynda komið fram í þessari stefnu einhver umræða um þróun í barnabótakerfinu, þróun á vaxtabótum og þess háttar myndi það mögulega undirbyggja aðeins meiri frið á vinnumarkaði farandi inn í haustið. Er það ekki ábyrgðarleysi af hálfu stjórnvalda að setja fram svona mikilvægt plagg þar sem jafn lítið svigrúm er til athafna og raun ber vitni í verðbólguhækkunum og mikilli verðbólgu núna án þess að minnast einu orði á hvort mögulega ætti að styrkja tilfærslukerfin til þess að við sjáum ekki höfrungahlaup á vinnumarkaði í haust? Fólk getur ekki treyst á að viðhalda kaupmætti sínum með aðstoð annars staðar úr tilfærslukerfunum heldur þarf bara að sækja hann beint til vinnuveitenda.