fjármálastefna 2022--2026.
Virðulegur forseti. Það er orðið ansi mikið þegar þingmenn úr stjórnarmeirihlutanum eru farnir að stilla okkur upp við vegg um lausnir í þessu. Ég hef ekki lausnirnar en við getum sameiginlega unnið að þeim. Þegar ég fer í pólitík þá er mín hugsun og mitt aðalmarkmið að auka velferð. Það skiptir mig máli að ég geti stuðlað að því með einhverjum hætti að auka velferð í samfélagi okkar. Hvernig gerum við það? Við verðum að afla tekna af því að velferð kostar. Þá þurfum við bara að horfast í augu við það að til þess að afla tekna verðum við að skattleggja. Við verðum að skattleggja. Við verðum líka að taka eðlilegan og réttlætanlegan skatt af nýtingu þeirra auðlinda sem við eigum. En við eigum að þora að horfast í augu við það að við þurfum að skattleggja. Það er ekkert að því að borga mikinn skatt ef þú hefur góðar tekjur. Við eigum auðvitað bara að þora að taka þessa umræðu. Við eigum ekkert að vera eins og Bandaríkin þar sem allir keppast við að reyna að stela undan skatti. Við eigum að gera eins og Skandínavar af því að við viljum telja okkur til Norðurlandaþjóðanna. Við viljum vera norrænt velferðarsamfélag.