fjármálastefna 2022--2026.
Virðulegur forseti. Þegar stórt er spurt er lítið um svör. Við þurfum alltaf á öllum tímum að vita hvað við ætlum að gera og hvað það sem við gerum kostar. Það þarf að verðleggja það sem við erum að gera. Ég sé ekki í þessari stefnu að það sé gert af því að það bíður okkar verulegur kostnaðarauki. Það þarf að byggja vegi til að þjóna túristum. Það þarf að byggja hjúkrunarheimili og það þarf að byggja heilsugæslur og það eru alls konar útgjöld sem þurfa að eiga sér stað. Það er talað um vaxtarsvæði. Það er talað um brothættar byggðir og allt þetta. Við þurfum að huga að öllu þessu en við sjáum þess ekki stað í þessari fjármálastefnu. Vonandi er einhvers að vænta í þeirri fjármálaáætlun sem á að leggja fram í vor þannig að við getum þá farið að reikna okkur niður á einhverja hluti sem skipta verulegu máli.