fjármálastefna 2022--2026.
Forseti. Í andsvörum áðan sagðist hv. þingmaður hræðast afkomutölur fjármálastefnunnar, hefði viljað hafa þær aðeins hærri, tölurnar sjálfar, nær núlli alla vega, væntanlega frekar í plús. Það hefur komið fram á undanförnum árum í áliti fjármálaráðs og í fjármálastefnunni sjálfri, í greinargerðinni þar undir, að ríkissjóður sé ósjálfbær eins og er miðað við langtímahagvaxtartölur, þ.e. óháð hagsveiflunum. Þá velti ég fyrir mér hvort hv. þingmanni finnst verra, skuldasöfnun eða skattahækkanir? Síðasti möguleikinn er einmitt að skera niður útgjöld einhvers staðar. Af þessu þrennu, hvað þarf að gera að lokum til þess að laga sjálfbærnivanda ríkissjóðs? Að lokum höfum við vaxið upp úr vandanum en þá erum við með hagvöxt sem er yfir langtímaspá um hagvöxt, sem við komum ekki til með að geta viðhaldið að eilífu, sem þýðir að við munum sveiflast fram og til baka. Ef við spennum bogann hátt búum við til bólu sem springur, þetta er bara þannig. Auðvitað er gott, og það er markmið laga um opinber fjármál, að reyna að sveiflast sem minnst í kringum langtímahagvöxt. Af því að þessi fjármálastefna lagar ekki undirliggjandi afkomuvanda, hvað eigum við að gera þegar allt kemur til alls? Á að skera niður útgjöld? Á að styrkja tekjuhliðina? Eða eigum við bara áfram að vera í mínus?