152. löggjafarþing — 39. fundur,  22. feb. 2022.

fjármálastefna 2022--2026.

2. mál
[21:21]
Horfa

Frsm. 3. minni hluta fjárln. (Björn Leví Gunnarsson) (P) (andsvar):

Forseti. Nei, einmitt ekki samkvæmt áliti fjármálaráðs, þar sem hægt er að fara í arðbærar fjárfestingar á lánum án þess að það hafi slæm áhrif á afkomu ríkissjóðs til lengri tíma. Það sem ég hef alltaf reynt að benda á er: Já, ég er sammála því að neikvæð afkoma til langs tíma er að sjálfsögðu ósjálfbær en ef ástæðan er ákveðin fjárfesting, sem kemur til með að skila sér til lengri tíma, þá er það alveg réttlætanlegt. Það er einmitt það sem mér finnst vanta og ég skildi þá stefnu að vaxa út úr vandanum á þann veg að ríkissjóður myndi taka fjárfestingaráætlanir og leggja að auki við það sem myndi teljast eðlilegt til að búa til aukaverðmæti, til að borga fyrir hallann sem hafði myndast. En hins vegar var bara farið í að bjarga því sem bjargað varð, því sem hægt var að bjarga. Það var rosalega lítið lagt í að gefa í. Til dæmis má benda á nýsköpunaráherslurnar. Þær voru vissulega einhverjar en í því umfangi sem var mögulegt var bara brot nýtt. Það sáum við strax í úthlutun Tækniþróunarsjóðs sumarið eftir að Covid byrjaði. Þar var rosalega lágt úthlutunarhlutfall í gæðaverkefni. Þar eru glötuð tækifæri. Ég sá það að vaxa út úr vandanum sem fjármögnun á slíkum tækifærum sem myndu auka hagvöxt umfram eðlilegan langtímahagvöxt sem myndi þá borga þetta. Núna erum við hins vegar að glíma við ákveðið jafnvægi og (Forseti hringir.) leitni í kringum jafnan hagvöxt, langtímahagvöxt, sem á þá að borga þetta í staðinn og það mun taka miklu lengri tíma.