152. löggjafarþing — 39. fundur,  22. feb. 2022.

fjármálastefna 2022--2026.

2. mál
[21:54]
Horfa

Frsm. meiri hluta fjárln. (Haraldur Benediktsson) (S) (andsvar):

Herra forseti. Ég hjó eftir í ræðu hv. þingmanns viðhorfi hennar til auðlindagjalda sem mig langar að leggja aðeins út af og spyrja hv. þingmann um. Ekki kannski að flækja það mjög mikið en við vitum af nýtingu ýmissa auðlinda og ein þeirra er varmaorka í jörðu eða bara heitt vatn. Við vitum að aðgengi að þeim lífsgæðum sem því fylgja að nýta þá orku til húshitunar og til baða og hvað við ekki gerum er mismunandi á milli landsmanna. Mig langar því að vita, í framhaldi af orðum hv. þingmanns í hennar ræðu, hvort hún sé t.d. að tala fyrir auðlindagjöldum á nýtingu á t.d. heitu vatni sem myndi þá væntanlega birtast í orkureikningum heimilanna.

Ég tek það fram, virðulegi forseti, að ég er ekki að reyna að flækja þetta eða leiða hv. þingmann í gildru því að ég held að það geti verið ágætt að við áttum okkur á hvaða umræðu við erum að tala um í auðlindagjöldum.