152. löggjafarþing — 39. fundur,  22. feb. 2022.

fjármálastefna 2022--2026.

2. mál
[21:56]
Horfa

Hanna Katrín Friðriksson (V) (andsvar):

Hvers vegna ekki auðlindagjald af heitu vatni? Ég er bara til í þá umræðu hvenær sem er en hún verður þá að vera þess eðlis að það gangi jafnt yfir alla aðila. Ég veit ekki hvernig sú útfærsla gæti orðið. Ef hér færi t.d. að verða til blómlegur atvinnuvegur sem fæli í sér nýtingu á þessu heita vatni sem jafnframt yrði af skornum skammti og það yrði frjálst framsal á slíku og það gengi í arf á milli kynslóða og aðrir hefðu ekki nýtingu af þessu vatni og það hækkaði verðið á mörkuðum, erum við þá ekki komin með óæskilega stöðu? Þetta er það sem ég myndi vilja sjá auðlindastefnu kalla eftir. Ég myndi ekki vilja umræðu um þetta fyrr en við færum yfir í alvöru auðlindastefnu. Ég stend ekki hér og er með spurningar til hv. þingmanns en ég bara velti því fyrir mér hvernig standi á því að við séum ekki löngu farin í þessa vinnu? Mér finnst það næstum því jafn merkilegt að við skulum ekki vera löngu farin í vinnu við að marka ríkisfyrirtækjum alvöru eigendastefnu. Það er raunverulega nátengt þessari spurningu hv. þingmanns: Hvernig förum við með sameignirnar okkar? Hvernig vinnum við með þetta í þágu almennings? Okkur vantar stefnu um þetta mál. Við þurfum bara að fara að ræða þetta. Og aftur segi ég að við erum stundum föst í einhverjum gömlum hjólförum, gömlum deiluefnum og gömlum þrætuefnum og gleymum í hita þess leiks og þeirrar leikjafræði að mörgu leyti held ég að það sé bara miklu meira sem sameinar okkur en sundrar þegar lokatakmarkið er haft í huga.