fjármálastefna 2022--2026.
Virðulegi forseti. Við erum að ræða fjármálastefnu. Ég geri mér grein fyrir því að þetta er ekki áætlun en hér er sannarlega um stóru myndina að ræða og sem varaþingmaður Flokks fólksins vil ég gjarnan skoða hana í samhengi við það hvernig hún mátast við fólkið í landinu, því að kjörorð okkar er eins og allir vita: Fólkið fyrst. Í gær var ég með fyrirspurn til mennta- og barnamálaráðherra þar sem ég spurði m.a. hvort búið væri að ræða við börnin á biðlistum og foreldra þeirra til að taka stöðuna á því hvernig þau hefðu það og hvernig þau höndluðu biðina. Hæstv. ráðherra kom í svör og vísaði í farsældarlöggjöfina sem var sett á síðasta ári við mikinn fögnuð. Ég verð að segja að þegar sú umræða var öll í gangi hér á síðasta ári voru margir spenntir. Ég sem borgarfulltrúi fylgdist auðvitað vel með og lengi vel upplifði ég að það ætti að bíða og sjá hvort þetta myndi fara í gegn og ef það gerði það þá yrði allt gott. Þá gæti borgin kannski bara slakað svolítið á því að þarna myndi ríkið, ríkisvaldið, koma sterkt inn. Eins og hæstv. ráðherra sagði ítrekað í svörum sínum þá tengist þetta þessari innleiðingu farsældarlöggjafarinnar, þarna verður grundvallarbreyting á og það mun létta á þriðja stigs úrræði og verða meira samráð og samband við heilsugæsluna og síðan mun þrýstingur líka minnka, eins og orðað var, á þörfinni þegar þessi frábæra löggjöf kemst í innleiðingu. En á meðan á þessu gekk kom alltaf upp þessi spurning hjá mér: Hvaðan koma peningarnir til að styrkja þetta allt og til þess einmitt að tryggja að það verði innleiðing? Ég man eiginlega ekki eftir að hafa heyrt hvert ætti að sækja þetta fé og verð að segja að ég var oft með hnút í maganum í þessari umræðu og sérstaklega þegar því var fagnað að málið væri komið í gegn. En hvar er fjármagnið? Þetta er ekki í fyrsta sinn sem verið er að setja löggjöf, flotta og fallega, en það er ekki mikið talað um hvaðan peningarnir eiga að koma í þetta allt. Og þetta er ekkert smáræði, við erum ekki að tala um neina smápeninga hér.
Það leiðir hugann að sálfræðiþjónustuumræðunni sem er nú aldeilis búin að vera í gangi hérna árum saman. Það eru 20 ár síðan ég sem sálfræðingur sat í samninganefnd Sálfræðingafélags Íslands við ríkisvaldið þar sem semja átti við sálfræðinga og við vitum alveg hvar við erum stödd í því. En það hefur tekist að kreista út eða tryggja alla vega 150 millj. kr., sem er náttúrlega dropi í hafið og verður nánast búið á einum sólarhring.
Þetta er alltaf spurningin um hvaðan peningarnir koma og við í Flokki fólksins viljum að fólkið sé sett í fyrsta sæti í einu og öllu þegar kemur að ákvörðunum sem snúa að fólkinu í landinu og þörfum þess og þjónustu við fólkið. Þetta er spurning um hvernig við viljum fara með skattféð. Hvernig viljum við útdeila því? Síðan ef við horfum til sveitarfélagsmálanna og til ríkisvaldsins þá er það alltaf þessi spurning: Hvernig er farið með fjármagn? Er verið að bruðla og sóa? Það hefur heilmikið verið rætt hérna um sveitarfélagsmálin og það er algjörlega frábært, finnst mér, verandi þar líka. Auðvitað er það misjafnt hvernig sveitarfélög fara með sitt fjármagn. Sum eru kannski að vanda sig og fara vel með peningana meðan önnur sveitarfélög leika sér meira að peningunum og sumir hafa talað um gæluverkefni o.s.frv. En sveitarfélög eru náttúrlega mjög misstór.
Áðan var talað um málaflokk fatlaðs fólks og auðvitað er það þannig þegar verið er að færa stór verkefni yfir til sveitarfélaga að það þarf að fylgja fjármagn og það hefur, eins og við vitum, alls ekki verið þannig nema upp að litlu marki. Síðast í dag vorum við einmitt að ræða um jöfnunarsjóðinn og allt það. En ef við horfum bara á NPA-samningana, hvar erum við stödd með þá? Það bíða mjög margir samningar eftir að vera teknir upp hjá sveitarfélaginu, t.d. Reykjavíkurborg, en það vantar fjármagnið. Það fólk sem óskar eftir að fá NPA-samninga þarf því bara að sætta sig við að það verður ekki að raunveruleika. Að svelta málaflokk með þessum hætti leiðir aldrei til góðs. Það kallar á enn meiri útgjöld síðar, vandinn vex, tekur á sig aðrar birtingarmyndir, og þegar upp er staðið verða útgjöldin enn þá meiri en nokkurn tíma hefði þurft að vera hefði strax verið tekið á málum og þörfum fólksins og þjónustu við það sinnt. Þannig er það.
Þeir eru margir mínusarnir og búið að ræða þessi mál býsna vel í dag en mig langar samt aðeins að koma inn á sveitarfélagsmálin. Það var verið að tala um sorpmálin og það kom fram í ræðu hv. þingmanns að sorpmálin væru ekki nærþjónusta heldur loftslagsmál. Ég held þau séu hvort tveggja. Ég held að það hljóti að vera. Þetta er auðvitað þjónusta við fólkið og loftslagsmál og stundum eru margar flugur slegnar í einu höggi. Það er bara dásamlegt. En auðvitað hefði þessi samræming átt að verða fyrir löngu. Það eru fjögur ár síðan tillögur í borgarstjórn voru um það að samræma og að flokka lífrænan úrgang á söfnunarstað. Þá var að því hlegið en það er að gerast núna og það á heldur betur að gera það myndarlega með miklum metnaði. Það er gott en það mun kosta og hvernig mun þetta koma við pyngju þeirra verst settu, þeirra efnaminnstu? Gjöldin eru að hækka gríðarlega núna, sem verður að gera vegna þess að þetta kostar, og það eru auðvitað þeir efnaminnstu sem verða mest fyrir barðinu á því.
Það er líka búið að ræða sameiningu sveitarfélaga og það leiðir huga minn að öllum þessum bs. byggðasamlögum. Ef það þarf svona mikið af byggðasamlögum, af hverju er þá ekki alveg eins gott að sameina sveitarfélög og af hverju má ekki horfa til höfuðborgarsvæðisins og sameina? Þá þurfum við ekki byggðasamlög. Og hvernig eru þessi byggðasamlög? Það er ekki mikið lýðræðislegt varðandi þau. Við vitum mjög vel að fjárhagsleg ábyrgð er ekki í neinum takti við áhrifin og völdin í byggðasamlögunum og það hefur verið margrætt hjá Sambandi íslenskra sveitarfélaga og hefur verið fengið sérstakt fyrirtæki til að finna leiðir svo hægt sé að bjóða eigendunum betur að ákvarðanatökunni. Það horfir svo sem til aðeins betri vegar en ég held að niðurstaðan verði samt aldrei góð fyrr en eitthvað af þessum sveitarfélögum sameinast. Við vitum líka að sum sveitarfélaganna hafa engan áhuga á að sinna félagslegu húsnæði og talað er um að verið sé að vísa fólki til Reykjavíkur þar sem biðlistinn er býsna langur þótt hann hafi aðeins styst. Þetta er auðvitað umræða sem þarf að fara fram hjá Samtökum íslenskra sveitarfélaga og ég hef óskað eftir sérstakri umræðu og fundi um þessi mál þar sem ég spyr hvernig væri að skoða ábyrgð sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu hvað varðar félagslegt húsnæðiskerfi og þá ekki bara sumra sveitarfélaga heldur allra.
Það er því af mörgu að taka sem hægt er að ræða í tengslum við þessa fjármálastefnu og enn þá meira spennandi verður að skoða áætlunina af því að þá fær fólk virkilega að sjá hvernig þetta mun allt saman leggjast út. Engu að síður er þetta heildarmyndin og mér hefur þótt virkilega mikilvægt að sitja og hlusta á þessa umræðu. Hún hefur verið mjög fræðandi út frá þessum punkti hér, frá ríkisvaldinu á Alþingi. Að sjá þetta koma báðum megin frá, frá ríki og borg, er ákveðin upplifun. Ég vil bara segja að við þurfum að vita hvernig við ætlum að borga brúsann, að þetta séu ekki bara orðin tóm og verið að tala út í loftið. Stundum upplifir maður að það sé einhver vinsældakeppni í gangi, sérstaklega þegar kemur að kosningum, þá er um að gera að vera með fögur orð og falleg frumvörp og reyna að fá þau í gegn. En síðan er kannski ekkert á bak við það og það nýtist engum.
En ég spyr enn: Hvernig á að fjármagna innleiðingu farsældarlöggjafarinnar sem er risastórt verkefni og mjög kostnaðarsamt? Það væri afskaplega gaman að sjá hvar á að taka þann pening og á hverjum það kemur mögulega niður. Þetta er jú allt úr einum vasanum í annan þegar verið er að færa til fjármagn nema sérstaklega verði farið að skoða sparnað. Síðan er það bara eins og Flokkur fólksins vill láta gera, að það sé fólkið fyrst sem er í algjörum forgangi og annað sem er ekki bein þjónusta við fólkið fyrst bíði. Það eru líka börnin sem við hljótum að verða og vilja leggja áherslu á. Tilhugsunin um öll þessi börn, nú tala ég aðeins út frá því að vera sálfræðingur til meira en 30 ára sem hefur unnið víða með börnum og foreldrum þeirra, sem eru á biðlista í meira en ár jafnvel og hvernig þeim líður og hvað er gerast með þau, er ótrúlega erfið. Ég þekki mál þar sem börn eru með sjálfsvígshugsanir vegna vanlíðunar og þessar tölur sem birtast okkur frá landlæknisembætti, frá velferðarvaktinni, um versnandi líðan barna í Covid — maður verður bara hræddur. Mér finnst að verið sé að leika sér hér að eldi. Hver vill taka þátt í svona leik? Ég held ekkert okkar hérna, hvorki á þingi né í borg. Það dugar ekki að segja að þetta sé verkefni sem við ætlum að fara að taka á, að þetta muni verða gert og sé grundvallarbreyting, þetta muni allt saman koma. Ég vil fá nákvæma tímaáætlun. Ég vil vita nákvæman kostnað og ég vil vita hvaðan eigi að taka þennan pening, til þess að þetta sé eitthvert alvörudæmi. Ég þekki allt of mikið af því, m.a. úr borginni, að það eru endalausar fallegar og flottar stefnur, maður fær alveg tár í augunum við að lesa þessar stefnur, en svo spyr maður sig: Hvar raunveruleikinn? Hvenær verður þetta gert? Að segja bara að þetta sé verkefni sem við ætlum að gera dugar ekki til. Það þarf að sýna fram á framkvæmdina og hvernig eigi að fjármagna hana til þess að þetta verði trúverðugt og til þess að fólkið í landinu yfir höfuð treysti á ríkisvald, að það sé að gera hluti og ætli að gera hluti sem það segist ætla að gera.
Virðulegi forseti. Ég læt þetta duga að sinni. Það er af mörgu að taka en hér eru allir orðnir þreyttir og vilja komast heim. Ég vil þakka kærlega fyrir þessa umræðu og eins og ég sagði áðan hefur verið afar fróðlegt og reynslumikið að hlusta á alla þessa góðu hv. þingmenn tala hér í dag.