fjármálastefna 2022--2026.
Forseti. Ég ætla að renna yfir og klára nefndarálitið hjá mér. Ég var komin að álitsgerð fjármálaráðs og átti eftir að renna yfir það hvað yrði um Covid-skuldina og álit meiri hluta. En mig langar samt að byrja á einu sem ég var að pæla í út af spurningu hv. þm. Bryndísar Haraldsdóttur sem var að velta fyrir sér hvaða tillögur við í stjórnarandstöðunni værum með. Þá fór ég að grufla meira í þessum tölum sem ég fékk um landsframleiðslu á hverju ári á verðlagi 2022 og var að reyna að skoða hvernig útgjöld og tekjur væru að þróast með tilliti til hlutfalls af vergri landsframleiðslu. Út tímabil fjármálastefnunnar eru útgjöldin sem hlutfall af vergri landsframleiðslu að lækka. Hlutfall útgjalda miðað við landsframleiðsluna lækkar. Það er eðlilegt af því að kakan er að stækka. Gott og vel. En það sem ég skil ekki er að tekjuhlutinn sem hlutfall af vergri landsframleiðslu er að stækka. Fyrirgefið, ég ætla að vera alveg viss um að ég segi þetta rétt, sem sagt: Útgjöldin sem hlutfall af vergri landsframleiðslu eru að minnka úr 31,95% niður í 29,87%. Minna hlutfall, sömu útgjöldin en stærri kaka. Tekjur eru núna 26,7% af vergri landsframleiðslu, 952 milljarðar af 3.565 milljörðum sem landsframleiðslan er. Svo hækka tekjurnar smám saman, 990 á næsta ári, rúmlega 1.000 2024, tæplega 1.100 árið 2025 og rúmlega 1.100 2026. En þær eru orðnar 29% af vergri landsframleiðslu. Hlutdeild teknanna í vergri landsframleiðslu jókst, en án þess að það sé tekjustefna um einhvers konar aukna skattheimtu. Tökum dæmi: Við erum með 30% skatt, rosalega flatan, og það eru 100 milljarðar í vergri landsframleiðslu. Það eru 30%. Ef verga landsframleiðslan hækkar í 110% og við erum enn þá með 30% flatan skatt þá eru tekjur enn þá 30% af vergri landsframleiðslu. Hlutfallið breytist ekki, ekki nema við hækkum skattinn. Krónurnar sem er á bak við hækka af því að landsframleiðslan hækkaði en hlutfallið er óbreytt, 30%. En hérna, miðað við þessar tölur í fjármálastefnunni, er hlutfallið að hækka og ég veit ekki hvaðan það kemur af því að það er engin tekjustefna um aukna skattstofna.
Ég potaði í framsögumann út af þessu og hann er kannski að bjalla í nefndarritara og athuga hvort það séu einhver svör við þessu því að það var ekki farið yfir þetta í nefndarvinnunni. Þetta er hluti af því sem ég var að vinna með efnahagsdeildinni í fjárlaganefnd, að reyna að fá tölurnar sem voru á verðlagi hvers árs í þjóðhagsspánni niður á verðlag 2022 til þess að það væri hægt að bera saman tölurnar í þjóðhagsspánni við tölurnar í fjármálastefnunni og tölurnar sem eru í áliti meiri hlutans. Þegar maður er búinn að púsla þessu saman og deila í tekjur og gjöld sem hlutfall af vergri landsframleiðslu þá sjáum við allt í einu að tekjurnar aukast hlutfallslega. Ég skil ekki hvernig það gerist. Ég hlakka til að fá svar við því og vona að það komi fyrst við erum nú rétt að klára þetta.
En dýfum okkur aðeins í álitsgerð fjármálaráðs. Ég segi í áliti mínu að álitsgerð fjármálaráðs skýri sig sjálf en það er nauðsynlegt að draga fram nokkrar áherslur í áliti ráðsins fyrir afgreiðslu þingsins á þessu máli. Í álitsgerðinni segir:
„Samhljóm skortir milli stjórnarsáttmála og framlagðrar fjármálastefnu. Stjórnvöld hafa boðað að hagkerfið muni vaxa til velsældar með jákvæðum áhrifum á afkomu og skuldir hins opinbera. Ekki er vísað til þeirra sjónarmiða með beinum hætti í framlagðri fjármálastefnu og er slíkt ekki í anda grunngildis um gagnsæi.“
Þessi umsögn fjármálaráðs lýsir fjármálastefnunni í hnotskurn að mínu mati. Stefnuleysi stjórnvalda í opinberum fjármálum er ekkert nema feluleikur með orðum þegar allt kemur til alls. Það er eitt sagt í stjórnarsáttmálanum og svo þegar maður fær fjármálastefna í hendurnar þá finnur maður ekkert um stefnuna sem ríkisstjórnin var sett saman um. Enn fremur segir þar, og er sama gagnrýni og ég var með áðan í andsvörum:
„Á sama tíma og æskilegt er að örva hagvöxt þarf engu að síður að útskýra hvernig stjórnvöld hyggjast gera það og hvers opinber fjármál eru almennt megnug til að stuðla að sjálfbærum hagvexti yfir höfuð. Hér er þörf á dýpri og umfangsmeiri umfjöllun.“
Þetta rímar algerlega við umfjöllun mína um þjóðhagslegt samhengi fjármálastefnunnar sem stjórnvöld sleppa algerlega að fjalla um. Einnig kemur eftirfarandi fram í áliti fjármálaráðs:
„Þrátt fyrir þann ólgusjó sem efnahagslífið hefur siglt í gegnum á síðustu árum verður ekki annað sagt en að staða opinberra fjármála sé góð, sérstaklega í samanburði við mörg önnur lönd og fortíðina. Fjármálaráð telur að hér hafi sá lagarammi sem gildir um stefnumörkun í opinberum fjármálum og mótar verklag við hana, enn og aftur sannað gildi sitt.“
Hér er ég hins vegar ósammála fjármálaráði og tel stöðuna hafa aðeins verið góða á yfirborðinu þrátt fyrir lög um opinber fjármál, enda tóku lögin ekki gildi fyrr en 2015, eftir að línurnar voru að mestu leyti lagðar um afgreiðslu stöðugleikaeigna. Og þó að skuldastaða ríkissjóðs hafi verið góð eftir stöðugleikaframlögin og ferðamannabylgjuna var mikil undirliggjandi viðhalds- og uppbyggingarþörf, sem ég nefndi í umræðu um fjárlög 2019 sem innviðaskuld. Bak við þá skuld er vaxtakostnaður sem er ótilgreindur en ellegar hefði áhrif á forgangsröðun skuldaniðurgreiðslna. Ef það er arðbærara að sinna viðhaldi vegna þess að það kostar meira til lengri tíma að hunsa það verkefni heldur en að greiða niður vexti af hreinum lánum þá ætti að sjálfsögðu að veita fjármagn í viðhald frekar en að greiða niður hreinar peningalegar skuldir, arðurinn af því til lengri tíma er einfaldlega meiri. Það að borga niður innviðaskuld væri hagkvæmara, þ.e. ef við hefðum þær tölur fyrir framan okkur, þann valmöguleika, sem við höfum ekki.
Ég andmæli því ekki að lög um opinber fjármál hafi haft jákvæð áhrif. En það er margt eftir ógert, fyrir utan innleiðingar á ákveðnum stöðlum varðandi reikningsskil. Helstu áhrifin eru í rauninni bara ítarlegri greining á efnahagsástandi, sem er jákvætt og fellur mjög vel að sérsviði fjármálaráðs, en það vantar alla eftirfylgni inn í eiginlega stefnu stjórnvalda, hvernig stefna stjórnvalda kemur til móts við efnahagsaðstæður á grunngildamiðuðum forsendum. Stefna ríkisstjórnarinnar uppfyllir einfaldlega ekki þau skilyrði laga um opinber fjármál. Þá vísa ég í áður tilvitnaðan texta úr fjármálaráði sem segir svipaða hluti.
Síðan faraldurinn hófst hefur halli á rekstri ríkisins verið brúaður með lántöku. Í þessari fjármálastefnu er gert ráð fyrir því að svo muni verða til og með 2026 þar sem afkoma ríkissjóðs á að vera í 35 milljarða kr. halla á verðlagi ársins 2022. Ég held að afkoma ríkissjóðs verði jákvæð mun fyrr, ekki vegna stefnu stjórnvalda hins vegar heldur þrátt fyrir stefnu stjórnvalda. Sú framsetning sem birtist okkur í framlagðri tillögu til fjármálastefnu er niðurstaðan á stefnu stjórnvalda að þeirra mati. Því fylgir að sjálfsögðu enginn rökstuðningur, eins og er rakið í álitinu. Það sem við stöndum þá með í lok þessarar fjármálastefnu eru skuldir upp á 2.138 milljarða kr., fyrir utan ófjármagnaðar lífeyrisskuldbindingar, sem voru um 746 milljarðar kr. í lok ársins 2020 og hafa a.m.k. ekki lækkað síðan þá, og skuldbindingar vegna ÍL-sjóðs Íbúðalánasjóðs upp á 200–250 milljarða í viðbót. Þá erum við komin í 3.200 milljarða, eitthvað svoleiðis, í rauninni verga landsframleiðslu eins og hún leggur sig eitt árið næstum því.
Það sem vantar í fjármálastefnu ríkisstjórnarinnar, sem sagðist ætla að vaxa út úr faraldurskreppunni, eru útskýringar um hvernig á að fara að því. Því ólíkt síðustu kreppu þar sem við vorum með eignir sem voru settar til hliðar sem áttu að ganga upp í skuldirnar sem stofnað var til út af bankahruninu þá eignaðist hið opinbera engar eignir á móti í útgjöldum sínum vegna faraldursins. Í þessari kreppu var fjármagni hellt í það að halda fyrirtækjum í skjóli. Engin áætlun er til um hvernig það fjármagn kemur til baka, nema einfaldlega von um betri hagvöxt o.s.frv., sem ég sé ekki að sé rosalega mikil áhersla lögð á, menn bara krossleggja fingur og vona að þetta verði þannig. Loforðið að vaxa út úr vandanum hlýtur að þýða aukningu umfram langtímahagvöxt á einhvern hátt þannig að sú fjárfesting sem farið er í fyrr borgi upp uppsafnaðar skuldir á meðan eðlilegur langtímahagvöxtur sinnir því að bæta lífskjör til lengri tíma. Annars erum við að taka lán hjá framtíðarkynslóðum. Það hefði því verið eðlilegt að sýna framreiknaða sviðsmynd um þróun skulda alveg þangað til þær hafa verið greiddar niður í eðlilegt hlutfall. Það þyrfti að sýna þróun án aðgerða til að vaxa út úr faraldrinum og hvaða áhrif aðgerðir stjórnvalda hafa á þá þróun. En fyrst stjórnvöld geta ekki einu sinni lagt fram tekju- og gjaldastefnu fyrir næstu fimm ár er auðvitað ekki mögulegt að þau geti metið þróun skulda til lengri tíma. Fjármálaráð orðar þetta svona í sínu áliti, með leyfi forseta:
„Framlögð stefna er fámál um hvernig skuldahlutfallið verði lækkað þegar fjármálareglur laganna taka aftur gildi. Þrátt fyrir að áform stjórnvalda miði að því að skuldalækkunarferlið hefjist utan tímabils framlagðrar stefnu hefði farið vel á því, í ljósi grunngildis um sjálfbærni, að birst hefði útfærsla stjórnvalda á því ferli í stefnunni.“
Ég hef ekki nægan tíma fyrir allt í álitinu en að lokum vil ég segja að ég tek undir gagnrýni fjármálaráðs varðandi þörfina á dýpri og umfangsmeiri umfjöllun um stefnu ríkisstjórnar. Lög um opinber fjármál fjalla ítarlega um skyldur stjórnvalda til þess að rökstyðja stefnu sína út frá grunngildum um varfærni, festu, stöðugleika, sjálfbærni og gagnsæi. Sjaldan er þörfin á slíkum rökstuðningi meiri en einmitt í efnahagslegri kreppu. Ég tel það vera á ábyrgð meiri hlutans í fjárlaganefnd að standa með fjárveitingavaldinu, sem er þingið, gagnvart stefnuleysi ríkisstjórnarinnar. Í áliti meiri hlutans er fjallað um hvernig sviðsmyndagreiningu sé ábótavant, að það þurfi nánari umfjöllun um opinberar framkvæmdir og að ekki séu töluleg viðmið um afkomu ef efnahagsþróun verður jákvæðari en spár gerir ráð fyrir. Ef meiri hlutanum er alvara með þessar ábendingar sínar ætti þingið ekki að afgreiða fjármálastefnuna fyrr en þeim ábendingum hefur verið svarað. Fjármálastefnan er ekki lögð fram á hverju ári eins og fjármálaáætlun og fjárlög þar sem hægt er að gera betur á næsta ári. Þetta er fjármálastefna núverandi ríkisstjórnar fyrir allt kjörtímabilið. Þessi fjármálastefna gefur þingi og þjóð enga innsýn í þróun opinberra fjármála á þessu kjörtímabili. Ég mæli því með því að stefnunni verði vísað aftur til ríkisstjórnarinnar og ég legg þess vegna ekki fram formlega breytingartillögu. Ég mæli með því og ég vonast til þess að meiri hlutinn taki það til sín. Það er ekkert flóknara en það.
Að öðru leyti tek ég undir sameiginlega yfirlýsingu 1., 2. og 3. minni hluta og áheyrnarfulltrúa í nefndinni, eins og ég talaði um áðan. Varaformaður nefndarinnar er kominn hingað aftur inn í þingsal eftir vonandi heppilegt samtal við efnahagsdeild fjárlaganefndar sem þarf alltaf að angra að kvöldi til, þegar við erum að afgreiða fjármálastefnu klukkan hálfellefu að kvöldi til. Þingið alltaf að skipuleggja. Ég vonast til þess að fá kannski einhverjar hugmyndir um það af hverju tekjuhlutdeild ríkisins er að aukast um rúmlega 2% á næstu fimm árum án þess að það sé nein sérstök stefna um aukna tekjustofna. Mér fyndist það alla vega fróðlegt.