fjármálastefna 2022--2026.
Herra forseti. Þetta er nú nokkuð sérstök samvinna en ágæt og vinna hv. þingmanns í fjárlaganefnd er nú yfirleitt alltaf ágæt. Það er ágætissamstarf þar og eðlilegt að við séum að velta þessu upp. Ég vil byrja á því í fyrra andsvari mínu að taka undir með hv. þingmanni, ég hef líka þá trú að við munum rísa hraðar og að efnahagslífið muni stækka hraðar. Ég hafði þá trú alveg þangað til í dag. Síðan er ófriðvænlegra í heiminum í dag og það getur haft mikil áhrif hér hjá okkur líka, við skulum ekkert loka augunum fyrir því. En almennt held ég að það sé meiri kraftur til viðspyrnu en við sjáum endilega birtast og þær spár sem litið hafa dagsins ljós, eftir að þingmálið kom fram, tala einmitt í þá átt.
Nú háttar þannig til að við leggjum í raun fjármálastefnuna fram í prósentum eða gildum. Það er síðan vinna fjárlaganefndar að reyna að átta sig á hvaða tölur við erum að tala um, en tillagan sjálf er ekki birt í tölum. Það bíður fjármálaáætlunar sem við ræðum væntanlega í vor. Ég er að reyna, eftir að hafa ráðfært mig við þá sem eru að vinna málin með okkur, að átta mig á hvar þingmaðurinn dregur fram þessar upplýsingar um tekjur og gjöld, af því að við sundurliðum það ekki sérstaklega í álitinu og ekki í þeirri töflu sem við birtum þar sem við reynum að gera prósenturnar að tölum. Svar mitt til hv. þingmanns er kannski bara að biðja hann að skýra aðeins þá mynd sem hann er að reyna draga upp út frá þessari töflu svo að ég sé betur undirbúinn fyrir seinna andsvarið.