fjármálastefna 2022--2026.
Takk fyrir það. Í nefndaráliti meiri hlutans eru tölur settar í þessa töflu þar sem fjármálastefnan er í staðinn fyrir hlutföll. Þjóðhagsspáin til næstu ára sýnir verga landsframleiðslu á verðlagi hvers árs fyrir sig. Ég sendi nefndarriturum spurningar: Hvernig get ég reiknað þetta niður á verðlag ársins 2022 til þess að það sé sambærilegt við tölurnar í stefnunni og þá töfluna í áliti meiri hlutans? Ég veit hver útgjöldin eru og hverjar tekjurnar eru í fjárlögum 2022 og ég get uppreiknað það miðað við 1% ætlaðan útgjaldavöxt. Ég sé hver landsframleiðslan er á næstu árum og ég get dregið frá útgjöldin eftir útgjaldavöxtinn, afkomutöluna sem á að vera hjá ríkissjóði til að fá tekjurnar sem þarf á móti útgjöldunum til að fá í raun rétta mínusafkomu. Þá get ég tekið þær tekjur og deilt þeim með vergu landsframleiðslunni, sem ég dró út úr þessari vinnu með nefndarritaranum, og séð hvert tekjuhlutfallið er af vergu landsframleiðslunni. Ég tek þetta skref fyrir skref til þess að reyna að fá heildarsamhengi í það hvernig stefnan gengur upp. Og þetta er niðurstaðan. Ég veit að nefndarritarar spurðu Hagstofuna, af því að þetta gekk ekki alveg upp í fyrstu atrennu, og Hagstofan gaf þumal á lokaútfærsluna hjá nefndarriturum, þar skeikaði 5 milljörðum eða eitthvað svoleiðis, í lok tímabilsins. En það eru ekki upphæðir sem breyta 2% muninum á hlutfalli tekna af vergri landsframleiðslu milli 2022 og 2026.