152. löggjafarþing — 39. fundur,  22. feb. 2022.

fjármálastefna 2022--2026.

2. mál
[22:33]
Horfa

Frsm. 3. minni hluta fjárln. (Björn Leví Gunnarsson) (P) (andsvar):

Forseti. Já, sko, allt í lagi. Hv. þingmaður er ekki með þessa töflu. Ég var búinn að vinna hluta af þessari töflu til að reyna að átta mig á samhenginu og vann þessa útreikninga núna — var aðeins að átta mig á þeim í umræðunni út af spurningum annarra hv. þingmanna í andsvörum. Ég velti því þá fyrir mér hvort fjárlaganefnd ætti ekki að kíkja aðeins á þessi gögn, þessar upplýsingar, áður en við afgreiðum stefnuna, bara til þess að vera alveg viss um að þetta gangi upp. Gefum okkur að þetta sé eins og ég segi — ég skal alveg viðurkenna að excel-inn getur klúðrast á einhvern hátt. Þetta er ekkert rosalega flókið en maður er hérna seint að kvöldi og ýmislegt svoleiðis. Gefum okkur að það sé rétt að hlutfall tekna af vergri landsframleiðslu hækki um rúmlega 2% á þessum fimm árum án þess að það sé stefna um auknar tekjur, umfram það bara að taka sama hlutfall af stærri köku — hærri tekjur í krónum, en hærri tekjur í hlutfalli er allt annað mál. Ég veit ekki alveg hvernig það virkar en þá legg ég til að málið fari aftur í nefnd fyrir atkvæðagreiðslu. Ég veit ekki hvernig það fúnkerar, hvort það þarf að gera hlé á umræðunni eða hvernig það virkar. Mér finnst þetta alla vega áhugavert því að 2% af vergri landsframleiðslu aukalega í hlutfallslegar tekjur eru ekkert smáræði og eitthvað sem ég held að þyrfti að útskýra.