152. löggjafarþing — 39. fundur,  22. feb. 2022.

fjármálastefna 2022--2026.

2. mál
[22:35]
Horfa

Frsm. 2. minni hluta fjárln. (Eyjólfur Ármannsson) (Flf) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni sína seinni ræðu. Ég er algjörlega sammála hv. þingmanni um að ég tel að við munum greiða skuldir hraðar niður en kemur fram í fjármálastefnunni. Ég er mjög bjartsýnn fyrir hönd íslensks efnahagslífs á næstu árum og á þá stefnu sem íslenskt hagkerfi mun taka á næstu árum. Ég held að það verði mikill vöxtur, mikill uppgangur, á næstu árum og við getum tekið til dæmi í sögulegu samhengi. Eftir spænsku veikina og eftir fyrri heimsstyrjöldina varð gríðarlegur uppgangur í íslensku samfélagi en ég tel að það sé stefna sem íslenskt samfélag tekur en ekki stefna ríkisstjórnarinnar. Við erum með frekar veikt miðstjórnarvald en við erum með sterkt samfélag og það er það sem mun keyra þetta áfram.

Það vakna spurningar þegar þessi uppgangur hefst og við þurfum að greiða niður skuldir. Ég vil taka fram að við erum í dag teoretískt séð að brjóta reglu 7. gr. um að skuldir séu lægri en sem nemur 30% af vergri landsframleiðslu. Þær verða 49,6% við lok tímabilsins og þegar svo er eigum við að byrja að greiða strax niður um 5%. Við erum í mjög óvenjulegu ástandi núna. Þegar uppgangurinn hefst er mikilvægt að við útrýmum fátækt og skerðingunum fyrir öryrkja og aldraða.

Í nefndaráliti hv. þingmanns, áliti 3. minni hluta, rýnir hann mjög í tekjustefnuna og gjaldastefnuna og telur upp í fimm liðum hvað tekjustefnuna varðar og þremur liðum varðandi gjaldastefnuna. Ég las enga sérstaka stefnu þar, tek ég fram, en það voru hins vegar áætlanir um að koma á stefnu. Mig langar því að spyrja hv. þingmann: Les hann eitthvað út úr gjaldastefnunni og tekjustefnunni, eða gjaldastefnunni sérstaklega, um að það eigi að leggja meira til velferðarmála, leggja meira til öryrkja og aldraðra til að afnema tekjuskerðingarnar og afnema fátæktargildrurnar? Sér hann eitthvað í fjármálastefnu (Forseti hringir.) sem muni auka samneysluna með þeim hætti að við þurfum ekki að vera í umræðu í lok tímabilsins um fátækt á Íslandi?