152. löggjafarþing — 39. fundur,  22. feb. 2022.

fjármálastefna 2022--2026.

2. mál
[22:41]
Horfa

Frsm. 3. minni hluta fjárln. (Björn Leví Gunnarsson) (P) (andsvar):

Forseti. Það er alveg séns á því að hægt sé að vinna þetta svona. Það er þarna 1% útgjaldaaukning sem gæti dekkað heilbrigðiskerfið, kannski eitthvað pínulítið meira. Það fer eftir því hversu nálægt við erum 1%. Ef það eru 0,7% þá er það bara heilbrigðiskerfið en með 1% er það heilbrigðiskerfið plús eitthvað, líklega raunaukning í lífeyriskerfinu. Annað yrði að fjármagna með einhvers konar útgjaldaskerðingum á öðrum málefnasviðum til að auka þá til lífeyriskerfins eða eitthvað svoleiðis. Það yrðu þá að vera hliðranir innan rammans en ekki aukin útgjöld eða neitt svoleiðis. Það sjáum við ekki fyrr en í fjármálaáætluninni. Það eru engin merki um að breyta eigi einhverju í fjármálastefnunni og ekkert endilega nauðsynlegt að það komi fram þar. Það er í rauninni stóra myndin um heildarrammann og hvernig tekjur, eignir, skuldir, gjöld o.s.frv. hafa áhrif á stóru myndina.

Síðan kemur nákvæm útfærsla á stefnu stjórnvalda í fjármálaáætlun varðandi aðgerðir á einstaka málefnasviðum og málaflokkum. Það er alveg séns en það myndi þýða samdrátt einhvers staðar. Kannski minni opinberar framkvæmdir þegar Landspítalinn klárast, að það verði dregið úr framkvæmdum og farið í að efla eitthvað annað á móti eða eitthvað því um líkt, en við verðum bara að sjá í fjármálaáætlun hvernig það leggst út.