152. löggjafarþing — 39. fundur,  22. feb. 2022.

fjármálastefna 2022--2026.

2. mál
[22:46]
Horfa

Frsm. 3. minni hluta fjárln. (Björn Leví Gunnarsson) (P):

Virðulegi forseti. Afsakið þetta. Hérna er ég bara að stússast í excel í ræðu. Það má hafa gaman af því. Ef ég lækka útgjaldavöxtinn niður í 0,35% þá er ég samt með 1,5% aukningu á tekjunum, þ.e. ég er ekki að reikna með 1% hækkun á öll útgjöld ríkisins og fer niður í 0,35%. Nú var 0,7% notað hjá ASÍ. Segjum að ég helmingi það bara á rammasettu útgjöldin. Þá ætti ég að vera vel undir þeim markmiðum sem talað er um þar. Þá erum við að tala um að útgjöld 2022 séu 1.139 milljarðar, 1.140 í rauninni árið á eftir, hækkunin er sama og ekki neitt, einhver milljarður á milli ára. En af því að verg landsframleiðsla er að hækka svona mikið eru tekjur samt alveg 28,1%.

Kíkjum alla vega á þetta í fjárlaganefnd og spjöllum aðeins um þetta þar. Ég held að það sé áhugavert. Þó að fjármálastefnan sé lögð fram í hlutfalli í þessum ramma þá var farið út í þær æfingar í áliti meiri hlutans að setja þetta í tölur miðað við hvaða tölur eru í þjóðhagsspánni. Þar er landsframleiðslan í hráum krónutölum. Það er því alveg hægt að miða við þær tölur, taka hlutföllin sem eru í fjármálastefnunni og skoða u.þ.b. hvað það væri í milljörðum. Ég mæli með því að við kippum þessu upp á á borð nefndarritara, að sýna okkur aðeins hvernig þetta lítur út, á næsta fjárlaganefndarfundi eða eitthvað svoleiðis. Ég held að það væri gagnlegt.

Annars: Takk fyrir umræðuna og þá höfum við þetta bara þannig.