152. löggjafarþing — 40. fundur,  23. feb. 2022.

drengskaparheit .

[15:01]
Horfa

Forseti (Birgir Ármannsson):

Eins og tilkynnt var á þingfundi í gær tók Katrín Sif Árnadóttir, 1. varamaður á lista Flokks fólksins í Norðausturkjördæmi, sæti á Alþingi sem varaþingmaður fyrir Jakob Frímann Magnússon, þriðjudaginn 22. febrúar. Kjörbréf hennar hefur þegar verið rannsakað og samþykkt en hún hefur ekki tekið sæti áður á Alþingi og ber því að undirskrifa drengskaparheit að stjórnarskránni. Ég vil biðja hv. þingmann að undirrita heitstafinn.

[Katrín Sif Árnadóttir, 8. þm. Norðaust., undirritaði drengskaparheit að stjórnarskránni.]