152. löggjafarþing — 40. fundur,  23. feb. 2022.

störf þingsins.

[15:03]
Horfa

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir (V):

Virðulegi forseti. Við viljum standa vörð um hagsmuni okkar og það gerum við m.a. með því að verja af fullum þunga þau gildi sem mesta þýðingu hafa fyrir okkur: frelsi, mannréttindi og lýðræði. Yfirgangur Rússa gagnvart frjálsri og fullvalda þjóð, Úkraínumönnum, er mesta ógn við vestræn lýðræðisríki í Evrópu í langan tíma. Þá skiptir máli, virðulegi forseti, að við séum skýr í okkar afstöðu, að samstaðan haldi. Við eigum að taka þátt í aðgerðum lýðræðisþjóða og vinaþjóða okkar af fullum þunga. Ég tel reyndar að við eigum að fara svipaða leið og Danir sem hafa sagt að þeir ætli að fara markvisst og betur inn í samstarfið innan ESB, innan NATO og styrkja nálgun sína við Bandaríkin. Það er nákvæmlega það sem við þurfum að gera, m.a. í ljósi varnar- og öryggishagsmuna okkar, út frá þjóðaröryggi, út frá hugsanlegum netárásum, út frá hugsanlegum falsfréttum o.s.frv. Þó að ég viti, og ég geri mér grein fyrir því, að innan ríkisstjórnarinnar séu flokkar sem eru tortryggnir gagnvart ESB og tortryggnir gagnvart NATO höfum við ekki efni á því að segja pass hér. Við þurfum að tala mjög skýrt. Með fullri virðingu finnst mér við þurfa að vera svolítið meira afgerandi í afstöðu okkar þegar kemur að þessu máli.

Mér kemur í huga afstaða okkar gagnvart Krímskaganum á sínum tíma og efnahagsþvingunum sem ákveðið var að fara í. Mér fannst þáverandi utanríkisráðherra vera svolítið einn á báti um tíma því að þá var þrýstingur á þá leið, frá forystufólki í þáverandi stjórnarflokkum, Framsóknarflokki og Sjálfstæðisflokki, auk yfirgengilegs lobbýisma af hálfu SFS og útgerðarblaðsins, að taka viðskiptahagsmuni fram yfir samstöðu þjóða; að taka viðskiptahagsmuni fram yfir hagsmuni okkar Íslendinga sem smáþjóðar hvað það varðar að verja landamæri okkar. Við verðum að gæta okkar og standa með lýðræðisþjóðum þegar við verðum vitni að jafn miklum yfirgangi og Rússar sýna nú gagnvart Úkraínu.

Mín skilaboð, virðulegi forseti: Ekkert mjálm, engin vettlingatök í nálgun Íslands gegn Rússum vegna þeirrar stöðu sem nú er komin upp í Úkraínu.