152. löggjafarþing — 40. fundur,  23. feb. 2022.

störf þingsins.

[15:08]
Horfa

Diljá Mist Einarsdóttir (S):

Virðulegi forseti. Á raunverulegum ógnartímum, þegar Rússland hefur enn á ný þverbrotið alþjóðalög og ráðist inn í Úkraínu, fannst mér jákvætt að hlusta á innlegg þingmanna um bráðnauðsynlega samstöðu hér á þinginu í gær og áfram í dag. Nú sem aldrei fyrr er nefnilega þörf á algerri samstöðu lýðræðisríkja. Við verðum að mæta þessum aðgerðum samstiga og af fullum þunga. En eins og það var jákvætt að hlusta á skilaboð þingmanna hér í gær var mér brugðið að hlusta á innhringingar landsmanna í útvarpsþætti á leið heim úr þinginu í gær. Þar hafði hver hlustandi á fætur öðrum samband til að lýsa yfir stuðningi við aðgerðir Rússlands og kvarta yfir einhliða fréttaflutningi af atburðarásinni hérlendis.

Virðulegi forseti. Mig langar því til að hvetja þingmenn og stjórnvöld til að taka þetta samtal við þjóðina og halda þessum sjónarmiðum á lofti sem heyrðust hér í þinginu í gær. Það eiga enda fáar þjóðir meira undir því en við Íslendingar að brot á alþjóðalögum séu ekki liðin. (Gripið fram í: Heyr, heyr.) Innrás Rússlands í fullvalda evrópskt ríki er sameiginlegt viðfangsefni og verkefni okkar Evrópuþjóða. Skilaboðin eru ekki síður þau að við stöndum með Evrópuþjóðum sem hafa hallað sér upp að Vesturlöndum og við styðjum við málstað þeirra með öllum tiltækum ráðum. Við höfum sofnað á verðinum og þrátt fyrir ógnartilburði og árásargirni Rússlands undanfarin ár hafa forystumenn í Evrópu verið máttlausir og jafnvel aukið á pólitískt erfið viðskipta- og hagsmunatengsl við rússnesk stjórnvöld. Meira að segja hérlendis heyrast raddir um að fleygja samstöðunni við evrópsk ríki fyrir viðskiptahagsmuni og það ekki bara í síðdegisútvarpi. Það væri alger afleikur fyrir smáríkið Ísland sem á allt sitt undir því að alþjóðalög séu virt af öðrum þjóðum.