störf þingsins.
Virðulegur forseti. Í nýlega birtri skýrslu starfshóps um tekjuöflun Happdrættis Háskóla Íslands segir m.a. að tryggja beri ábyrga spilun í spilakössum og draga úr skaða sem spilafíkn veldur. Hvað er ábyrg spilun í spilakassa? Hvernig á að draga úr óábyrgri spilun? Er þá í lagi að spila frá fjölskyldunni aðra hverja máltíð eða bara þriðju hverja máltíð barnanna? Eða tapa í spilakössum andvirði þvottavélar sem fjölskylduna sárvantar eða andvirði þurrkarans sem vantar? Það er stórfurðuleg siðleysisfroða sem svífur út um allt í þessu spilakassamáli og hún gengur aldrei upp. Hvernig á að draga úr skaða af spilafíkn? Taka upp spilakort? Nei, þvílík hræsni. Hvernig fellur það að siðferði Siðfræðistofnunar Háskóla Íslands? Það er fáránlegt að nota spilakort sem hækju til að réttlæta áframhaldandi notkun á spilakössum. Það er bara til ein leið. Það er að hætta með þetta ömurlega mál. Það er bara ein lausn, banna spilakassa strax eins og 85% þjóðarinnar vilja. Með ábyrgri spilun segir í skýrslunni að viðskiptavinir, spilafíkillinn, verði upplýstir um áhættuþætti peningaspila og algengra hugsanavilla þeim tengdum. Fíkillinn þekki vinningslíkur leikja og viti að hann sé líklegri til að tapa peningum með þátttöku sinni en að hagnast á henni. Þannig megi lágmarka mögulegt fjártjón. Þvílíkt froðubull er þetta því innlendar og erlendar rannsóknir sýna skýr tengsl milli spilafíknar og spilavanda. Að sögn er bara lítill hluti fjármagnsins frá spilafíklum að skila sér til háskólans. Af rúmlega milljarða veltu skilar stærsti hluti hagnaðarins sér sem innlendur og erlendur kostnaður. Hver er bleiki fíllinn í þessu dæmi? Jú, það er ríkisstjórnin sem fjársveltir Háskóla Íslands og lætur það viðgangast að bara lítill hluti hagnaðarins skili sér til skólans frá spilafíklunum og stærsti hlutinn fer í kostnað. Það var strax í skýrslu á vegum Siðfræðistofnunar 1993 bent á þau siðferðislegu álitamál sem fylgja spilakössunum og því er löngu kominn tími á að stöðva þetta ömurlega spilakassasiðleysi og það strax.