störf þingsins.
Forseti. Við þurfum að ræða pínulítið um tölur. Í fjármálastefnuumræðu í gær vakti ég athygli á því að útreiknuð fjármálastefna þýddi að tekjur væru að hækka með tilliti til vergrar landsframleiðslu án þess að tekin væri stefna í fjármálastefnunni sjálfri, því að það er það sem hún á að snúast um. Ef ríkið ætlar að sækja sér auknar tekjur þá þarf það að segja hvernig, alla vega u.þ.b., í fjármálastefnu og með nánari útfærslu í fjármálaáætlun.
Núna vorum við að fá greiningu á þessu frá fjárlaganefnd sem tekur undir það sem ég var að benda á í gær. Það er u.þ.b. 2% hækkun miðað við verga landsframleiðslu sem á að sækja í auknar tekjur, skatttekjur í rauninni, hvernig nákvæmlega vitum við ekki, á þessu tímabili fjármálastefnunnar. Það eru u.þ.b. 80 milljarðar sem á að ná í. 80 milljarðar sem hið opinbera ætlar að sækja sér í auknar tekjur. Allt í lagi. Það er þörf á því af því að ríkissjóður er ósjálfbær. Á sama tíma eru líka óútfærðar afkomubætandi aðgerðir upp á um 100 milljarða uppsafnað árið 2025. Til viðbótar leggjast við það viðbæturnar sem komu í fjárlögum 2022 og þá erum við komin í 120 milljarða. Við erum komin í 200 milljarða, annars vegar 120 í mínusinn, sem eru lækkuð útgjöld, og hins vegar 80 milljarða í auknar skatttekjur. Þetta er ekki í fjármálastefnunni sem greiða á atkvæði um hér á eftir.
Mér finnst ótrúlegt að hægt sé að leggja fjármálastefnu svona fram án þess að útskýra þetta nákvæmlega, að ríkisstjórnin ætli sér á kjörtímabilinu að sækja sér 80 milljarða aukalega í skatttekjur og draga úr útgjöldum um 120 milljarða.