störf þingsins.
Herra forseti. Efnahagslegur stöðugleiki er eitt stærsta hagsmunamál almennings á Íslandi og það er staðreynd að við búum ekki við slíkan stöðugleika í dag með vaxtastigið á fleygiferð og verðbólguna sömuleiðis, eins og svo oft áður. En þetta þarf ekki að vera svona. Efnahagslegur stöðugleiki er ekki útópískur draumur heldur markmið sem við í Viðreisn teljum að best verði náð með inngöngu Íslands í Evrópusambandið og upptöku evru í kjölfarið. En það er langt frá því eini ávinningurinn sem samstarf þjóða í Evrópu í gegnum Evrópusambandið felur í sér. Evrópusambandið er eitt mikilvægasta friðarbandalag sögunnar og styður frelsi, öryggi og réttindi almennings þvert á landamæri. Þetta er falleg hugsjón sem hefur reynst Evrópu allri dýrmæt.
Frá lokum síðari heimsstyrjaldar hefur Ísland verið þátttakandi í margvíslegu fjölþjóðlegu samstarfi. Tilgangurinn, markmiðið og ávinningurinn hefur alltaf verið sá sami: sterkari staða Íslands í samfélagi þjóða. Við erum í þessu samfélagi sterkari í stjórnmálalegu tilliti og sterkari í menningarlegum efnum. Við erum sterkari hvað varðar öryggi og varnir og við erum vitaskuld sterkari að því er varðar efnahags- og viðskiptamál. Þessi samvinna hefur styrkt rödd Íslands á alþjóðavettvangi og gert okkur ríkari, gert okkur öflugri, gert okkur sterkari og um það snýst málið. Ef við færum þessar staðreyndir yfir á hina ískyggilegu stöðu í austurhluta Evrópu núna er ljóst að án Evrópusambandsins væri einörð samstaða gegn yfirgangi Rússa töluvert flóknari. Nú þurfa íbúar Úkraínu að njóta þess að það er styrkur í samstöðunni.