störf þingsins.
Virðulegi forseti. Í gær var útbýtt tillögu minni til þingsályktunar um frumkvöðlalaun. Tillagan felur í sér að Alþingi álykti að fela háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra að koma á fót starfslaunum fyrir frumkvöðla með það að markmiði að efla enn frekar nýsköpun í landinu. Tillagan er í samræmi við klasastefnu fyrir Ísland frá mars 2021 sem tilgreinir frumkvöðla sem lykilaðila til árangurs hvað varðar nýsköpun. Með stefnunni er sett fram sú framtíðarsýn að árið 2030 verði Ísland meðal fremstu landa hvað varðar sjálfbæra atvinnuuppbyggingu, samkeppnishæfni og almenna hagsæld. Svo að hægt sé að ná þessum markmiðum þarf að skapa aukið svigrúm fyrir frumkvöðla til að starfa að hugðarefnum sínum. Starfslaun frumkvöðla veita færi á að nýta frumsköpunarkraft grasrótarnýsköpunar og draga fram nýjar lausnir. Innleiðing á hugmyndafræði sjálfræðis í nýsköpun skapar aukið svigrúm fyrir hugmyndaauðgi og getur þannig skilað fleiri og fjölbreyttari lausnum á flóknum viðfangsefnum samtímans. Þannig gefst tækifæri til að vinna að lausnum á mörgum krefjandi viðfangsefnum samtímans, t.d. að skapa nýjar lausnir á grundvelli hringrásarhagkerfisins og sjálfbærrar nýtingar auðlinda.
Starfslaun frumkvöðla geta einnig orðið áhrifaríkt tæki hvað varðar byggðaþróun enda er eitt af markmiðum klasastefnu fyrir Ísland að ráðstafa fjármunum til byggðaþróunar. Ég hvet hv. þingmenn til að kynna sér tillöguna enda er markmið hennar að efla enn frekar stuðningsumhverfi frumsköpunar og frumkvöðlastarf í landinu með fjölgun fjölbreyttra atvinnutækifæra og aukna verðmætasköpun að leiðarljósi.