152. löggjafarþing — 40. fundur,  23. feb. 2022.

störf þingsins.

[15:18]
Horfa

Hildur Sverrisdóttir (S):

Virðulegi forseti. Það er við hæfi á þessum tímapunkti að nota tækifærið og gleðjast yfir nýboðaðri og tímabærri afléttingu sóttvarna. En að alvarlegri málum. Eins og þegar hefur verið komið inn á hér af hv. þingmönnum erum við því miður að upplifa grafalvarlega stöðu átaka og óvissu, stöðu sem kallar á samstöðu með vestrænum ríkjum í baráttu þeirra fyrir virðingu fyrir alþjóðalögum og sjálfsákvörðunarrétti þjóða sem og aðgerðir sem verður að inna af hendi til að standa undir þeirri samstöðu.

Þessi staða er ekki eingöngu krísa í Úkraínu. Þetta er krísa Evrópu og vestrænna ríkja þar sem virðing við vestræn gildi og varnir þeirra verður að vera mikil. Herlaus þjóð getur þá óhjákvæmilega ekki annað en sett í samhengi hve mikið við eigum undir því varnarbandalagi sem við tökum þátt í með aðild að NATO, varnarbandalagi sem hefur þann megintilgang að tryggja frelsi og öryggi aðildarríkja sinna með áherslu á lýðræðisleg gildi í þágu friðar. Við erum vissulega stolt og sjálfstæð þjóð en í þessu efni er ekki skynsamlegt að vera eyland í eiginlegri merkingu. Í rúmlega 70 ára aðildarsögu Íslendinga að NATO hefur vitaskuld verið mismikil meðvitund fyrir tilvist okkar í því bandalagi og auðvitað mismikil skynjun fyrir nauðsyn þess.

Forseti. Sú staða sem nú er uppi á að minna okkur með afgerandi hætti á að þetta er ekki eingöngu krísa langt í burtu sem kemur okkur ekki við. Þetta er krísa sem er árás á gildi okkar og kallar á samstöðu og viðbrögð, viðbrögð þar sem vera okkar í varnarbandalagi NATO er mikilvæg.