störf þingsins.
Virðulegi forseti. Í fréttatilkynningu á heimasíðu Stjórnarráðsins frá 11. júní 2014 var tilkynnt um, með leyfi forseta:
„Tímamót í útlendingamálum. Með það að markmiði að hraða málsmeðferð vegna hælisumsókna, bæta verklag og tryggja sem besta nýtingu fjármagns hafa innanríkisráðuneytið og Rauði krossinn á Íslandi í dag gert með sér samning um þjónustu við hælisleitendur.“
Frá árinu 2014 hafa lögfræðingar á vegum Rauða krossins sinnt réttindagæslu við umsækjendur um alþjóðlega vernd á Íslandi. Tilgangur samstarfsins var, líkt og ég nefndi í þessari tilvitnun, að bæta verklag, hraða málsmeðferð og bæta nýtingu ríkisfjármuna. Þeim sem eru mér og mínum kollegum oft ósammála í flóttamannamálum, þar á meðal er t.d. Sjálfstæðisflokkurinn almennt, stefna hans er ekki sú sama og mín, verður oft tíðrætt um þessi markmið sem við þó eigum sameiginleg, sem eru að tryggja góða nýtingu ríkisfjármuna og skilvirka og hraða málsmeðferð. Nú fyrir skemmstu, eins og hefur verið mikið í fréttum, tók ráðherra þá ákvörðun að framlengja ekki þennan samning við Rauða krossinn sem í sjálfu sér er ekki neitt stórmál ef farið hefði verið eftir því sem stóð til, sem var að hugsa upp nýtt fyrirkomulag, fá nýjan aðila til að sinna þessari réttindagæslu og jafnvel fara í annað útboð. Nú hefur ráðherra nefnt að það standi ekki einu sinni til að fara í útboð og í raun veit enginn hvað tekur við. Mér þykir því ljóst að markmiðið í þessum málum hjá ráðherra sé, eins og staðan er, ekki sú að hraða málsmeðferð, tryggja skilvirka málsmeðferð og góða nýtingu ríkisfjármuna. Ég spyr því: Hvert er markmiðið þá?