152. löggjafarþing — 40. fundur,  23. feb. 2022.

störf þingsins.

[15:23]
Horfa

Oddný G. Harðardóttir (Sf):

Herra forseti. Opin og frjáls lýðræðissamfélög, líkt og okkar á Norðurlöndum, eru ekki sjálfgefin en þau eru bestu samfélög í heimi þar sem ríkir meira traust á milli manna en í öðrum löndum. Ein helsta ógn nútímans við samfélög og við lýðræði sem heild eru netárásir og upplýsingaóreiða og þar eiga öll samfélög undir högg að sækja. Við verðum að finna leiðir til að standa vörð um opin og frjáls samfélög og líta á lýðræði líkt og nauðsynlega innviði, líta á lýðræðið líkt og á skólakerfið, heilbrigðiskerfið, vegakerfið og flutningskerfin, því án lýðræðis sem er virt er samfélagið allt í hættu. Í valdatafli nýta aðilar sér upplýsingaóreiðu til að rugla fólk í ríminu, til að veikja andstæðinginn og gera honum erfiðara um vik að verjast. Netárásir eru síðan beinar árásir á innviði samfélaga og ógnin getur bæði beinst að opinberum stofnunum og einkafyrirtækjum. Netárásir, upplýsingaóreiða og falsfréttir flæða yfir landamæri og það er því afar brýnt að þjóðir vinni saman og standi saman gegn þessum ógnum. Við höfum séð skýr dæmi um afleiðingarnar. Ég get nefnt kosningarnar um Brexit, forsetakosningarnar í Bandaríkjunum árið 2016 og framferði Rússa í deilunni um Úkraínu.

En hvað er til ráða? Menntun skiptir máli. Við þurfum að styrkja hinn almenna þekkingargrundvöll og mennta unga fólkið okkar, en við þurfum einnig að mennta eldra fólk sem stundum dreifir falsfréttum án þess að vita hvað að baki þeim býr. Fjölmiðlar leika lykilhlutverk, fjölmiðlar sem greiða úr upplýsingaóreiðunni og gefa lýðræðislegri umræðu fóður, sem fá lagalega vernd til að gera það sem best. Árásir á blaðamenn sem eru að sinna því hlutverki er í raun árás á lýðræðið og á frjáls og opin samfélög.