152. löggjafarþing — 40. fundur,  23. feb. 2022.

störf þingsins.

[15:25]
Horfa

Berglind Harpa Svavarsdóttir (S):

Virðulegur forseti. Sérhæfð bráðaþjónusta er staðsett í Reykjavík. Þeir sem veikjast í nágrenni við Landspítalann fá snögga og góða þjónustu í bráðaerindum. Meira að segja var farið í átak innan Landspítalans við móttöku einstaklinga með einkenni heilablæðingar. Reynt var að fækka þeim mínútum sem voru til staðar frá móttöku, greiningu að þeim tíma sem sérhæfð bráðaaðgerð fer fram. Þetta kalla ég flott vinnubrögð og mikilvægt er að við búum öll við svo faglega og góða bráðaþjónustu.

En hver er staðan í móttöku, greiningu og aðgerð fyrir fólk sem verður bráðveikt á landsbyggðinni? Þar eru ekki framkvæmdar ákveðnar sérhæfðar bráðaaðgerðir og mikilvægt er því að fullbráðagreina á stuttum tíma, bregðast við í kjölfar greiningar með viðeigandi lyfjum og kalla strax í kjölfarið til sjúkraflug ef sækja þarf suður.

En hvernig er staðan á Austurlandi? Á Austurlandi er lengsta flugleið til Reykjavíkur, um 400 km. Það ýtir enn frekar undir mikilvægi þess að bráðagreining fari fram á sem stystum tíma. En á Egilsstöðum er ferlið varðandi móttöku og bráðagreiningu illa tækjum búið. Fjórðungssjúkrahús eru vel tækjum búin en á Austurlandi er fjórðungssjúkrahúsið ekki miðsvæðis og fólk oft komið um langan veg í víðfeðmasta sveitarfélagi landsins, Múlaþingi. Ekki er gerlegt að keyra alla leið frá Egilsstöðum að fjórðungssjúkrahúsinu, 58 km, einungis til bráðagreiningar, keyra svo aðra 58 km, fara svo í 400 km flugleið — það er eins gott að tryggt sé að hægt verði að lenda í Vatnsmýrinni í nálægð við Landspítalann því mínúturnar skipta líka miklu máli á landsbyggðinni, ekki bara innan Landspítalans.

Þessar staðreyndir eru ástæða þingsályktunartillögu sem ég er að vinna varðandi mikilvægan tækjakost til bráðagreiningar á Egilsstöðum. Ég vona að sú þingsályktunartillaga hljóti framgang og stuðning meðal þingmanna og við munum öðlast vissu um heilsufarslegt öryggi okkar með upplýstri og faglegri greiningu, sama hvar við búum á landinu.