152. löggjafarþing — 40. fundur,  23. feb. 2022.

störf þingsins.

[15:27]
Horfa

Halla Signý Kristjánsdóttir (F):

Virðulegi forseti. Ríkisendurskoðandi birti á mánudaginn skýrslu um úttekt á tollframkvæmd vegna landbúnaðarafurða þar sem segja má að tollframkvæmd landbúnaðarafurða hafi fengið falleinkunn. Í skýrslunni voru gerðar alvarlegar athugasemdir við tollframkvæmd hér á landi. Þetta sætir furðu þar sem sams konar úttekt á þessum þáttum hjá Tollinum var framkvæmd fyrir níu árum síðan. Margir af þeim annmörkum sem komu fram þá eiga enn við í dag. Þrátt fyrir gríðarlega aukningu síðustu ára á innflutningi landbúnaðarvara, sérstaklega mjólkurafurða, hefur mikilvægi eftirlits ekki aukist að sama skapi, því miður. Það sætir furðu að þrátt fyrir að tollframkvæmd á innfluttum vörum hafi verið þó nokkuð í kastljósinu undanfarin misseri virðist sem ekkert hafi verið reynt til að bæta úr né að gera hana skilvirkari. Úttektin staðfestir það sem haldið hefur verið fram, að allnokkurt misræmi er á útflutningstölum Evrópusambandsins og innflutningstölum Hagstofu Íslands í tilviki ákveðinna landbúnaðarvara. Nú vinnum við eftir alþjóðlegu flokkunarkerfi yfir flytjanlegar vörur sem samið er af tollsamvinnuráði í Brussel. Því ætti samræming tolleftirlits ekki að vera nein stjarneðlisfræði. Þrátt fyrir það virðist ekki vera hægt að tolla rétt vörur hér á landi. Framkvæmdin er að Tollurinn hérlendis tollflokkar vörur í samræmi við upplýsingar frá innflytjendum og virðist treysta þeim upplýsingum í blindni í stað þess að bera þær saman við skráð flokkanúmer frá útflytjanda. Það er athyglisvert að þarna eru íslenskir innflytjendur frjálsir að tollflokka sínar vörur að vild og þegar maður horfir á misræmið er ekki laust við að maður haldi að þarna sé um einbeittan brotavilja að ræða.

Virðulegi forseti. Þá komum við að mikilvægi eftirlitsins. Það er nauðsynlegt að Skatturinn sem sér um tollframkvæmd sé í betri samvinnu við aðra tollstofnanir erlendis. Þangað til að úr því verður bætt munu áfram eiga sér stað ósanngjarnir viðskiptahættir hér á landi og fjárhagslegt tap fyrir ríkissjóð.