störf þingsins.
Herra forseti. Ég vil ræða hér hina alvarlegu atburðarás í Úkraínu, sem nú hefur hratt tekið á sig verri mynd með því að brotið er enn frekar á fullveldi landsins af hálfu Rússlands. Það er verið að brjóta alþjóðalög og við það verður ekki unað. Almenningur í Úkraínu stendur frammi fyrir því að verða mögulega fórnarlamb mikilla átaka. Það er mikilvægt að þjóðir sýni samstöðu í viðbrögðum sínum. Það er grundvallaratriði að landamæri séu virt og sjálfsákvörðunarréttur þjóða, það ættum við Íslendingar að þekkja. Hér þurfum við að sýna pólitíska samstöðu með öðrum vestrænum ríkjum í efnahagsaðgerðum og öðru því sem hægt er að gera til að knýja fram friðsamlega lausn. Við megum ekki missa niður það sem hefur áunnist með betri samskiptum og friði í álfunni síðustu áratugi og viðbrögðum við sameiginlegum áskorunum. Það þarf að stíga fast niður og, ef mögulegt er, að snúa ofan af þeirri atburðarás sem er að eiga sér stað og finna farsælli leiðir með diplómatískum lausnum sem eru í allra þágu.
Utanríkismálanefnd Alþingis fór yfir stöðuna í morgun og á eftir munum við áfram funda með utanríkisráðherra. Það er mjög mikilvægt fyrir framhaldið að sú samstaða sem er í nefndinni og í þinginu um alvarleika málsins haldist áfram og að við stöndum með samfélagi þjóðanna í viðbrögðum og leggjum okkar af mörkum að farsælli lausn til framtíðar.