störf þingsins.
Virðulegi forseti. Styrkleiki íslensks samfélags felst í trú okkar á frið, mannréttindi og lýðræði. Frá lýðveldisstofnun hefur velgengni okkar grundvallast á sjálfsákvörðunarrétti okkar til athafna og ákvarðana um eigin örlög. Blessunarlega hefur stríð ekki ógnað okkar tilveru né fullveldi frá seinni heimsstyrjöld. Öryggi okkar byggist á sterkum gagnkvæmum vörnum bandalagsríkja þar sem áhersla er lögð á sameiginlegar varnir og þétta samvinnu. Ísland hefur axlað sína ábyrgð í þeim efnum og á að gera það áfram. Við Íslendingar skiljum mikilvægi þess að leikreglur alþjóðasamfélagsins séu virtar. Innrás í frjálst og fullvalda ríki má aldrei og á aldrei að verða án afleiðinga fyrir þann sem valdi beitir.
Herra forseti. Við Íslendingar erum fámenn, herlaus þjóð í gjöfulu landi. Það rof sem blasir við í öryggismálum í okkar heimsálfu er grafalvarlegt og kallar á sameiginleg viðbrögð. Staðan kennir okkur einnig mikilvægi þess að landið sé sjálfbært, fæðuöryggi okkar sé tryggt, samningar okkar á alþjóðavettvangi séu virtir og varnir okkar traustar. Það er og verður ávallt siðferðisleg skylda okkar að hvetja til friðsamlegra lausna og standa gegn stríðsátökum sem einna helst bitna á saklausum borgurum.
Ég trúi því, herra forseti, að stjórnvöld og Alþingi tali skýrt fyrir þeim gildum sem skilað hafa friði og velsæld í Evrópu í áratugi og að enginn afsláttur verði gefinn þar á.