152. löggjafarþing — 40. fundur,  23. feb. 2022.

blóðmerahald.

[15:36]
Horfa

Inga Sæland (Flf):

Virðulegi forseti. Ég vil byrja á því að þakka hæstv. matvælaráðherra fyrir að vera með okkur hér í dag og ykkur, hv. þingmönnum. Ég byggi þessa sérstöku umræðu á fjórum beinum spurningum til hæstv. matvælaráðherra en ég mun náttúrlega tala í kringum þær að öðru leyti. Ég ætla að lesa, með leyfi forseta, hverjar þær spurningar eru.

Er hæstv. ráðherra meðvituð um þá miklu neikvæðu umræðu sem nú á sér stað í Evrópu og víðar í kjölfar heimildarmyndar um blóðmerahald á Íslandi? Það er ekki að ástæðulausu sem þessi spurning er sett fram. Það er einfaldlega vegna þess að við erum að bíða gríðarlegan álitshnekki á erlendri grundu út af þessari iðju sem flestum og mjög mörgum þykir vera með eindæmum siðlaus, svo ekki sé meira sagt, árið 2022, í því sem við myndum kalla siðmenntað samfélag. Hér er um að ræða örfáa einstaklinga ef litið er til heildarinnar sem stunda þessa iðju. Stór hluti allra hesta á Íslandi er notaður í þessa iðju, eins og fram hefur komið fyrir atvinnuveganefnd þar sem við höfum fengið góða gesti. Þeir hafa tjáð okkur meira um málið, bæði þeir sem hafa eiginlegra peningalegra hagsmuna að gæta og vilja gjarnan halda áfram að fá að stunda þessa iðju og svo aftur á móti hinir sem líta meira til velferðar dýranna sjálfra.

Önnur spurning sem ég legg fyrir hæstv. matvælaráðherra er: Hvernig hyggst hæstv. ráðherra bregðast við til að verja orðspor Íslands á erlendri grund öðruvísi en að banna alfarið allt blóðmerahald? Það skal tekið fram að það er algerlega á hennar valdi að sjá til þess að þessari iðju verði hætt.

Í þriðja lagi: Telur hæstv. ráðherra réttlætanlegt að fórna svo miklum mun meiri hagsmunum fyrir minni að blóðmerahald verði ekki stöðvað og það strax? Ég hef áður sagt, og það hefur komið hér fram, að Íslandsstofa sem hefur verið að markaðssetja landið okkar á erlendri grund hefur lagt mikla rækt við það að sýna fram á hreinleika okkar lands og fallega náttúru. Undanfarin sex ár sérstaklega hefur verið ráðstafað ákveðnu fé til þess að auglýsa íslenska hestinn, Horses of Iceland, í sínu hreina fallega umhverfi og hvergi nokkurs staðar hefði nokkrum einasta manni dottið í hug að tala þar um blóðmerahald enda er þetta mjög tilfinningaþrungið á margan hátt. Ég hef sem þingmaður í á fimmta ár aldrei fengið önnur eins viðbrögð og ég er að fá nú. Um leið og ég stend hér vil ég nota tækifærið og þakka öllum þeim sem hafa sent mér hvatningu, sem hafa hringt í mig, eru búnir að senda mér bréf frá útlöndum og út um allt. Ég hefði aldrei trúað því að málið sem ég mælti fyrir hér fyrst í fyrravor ætti eftir að verða svona risavaxið.

Hvers vegna mælti ég fyrir þessu máli í fyrravor og vildi fara þess á leit að blóðmerahald yrði bannað? Jú, ég kynnti mér löggjöf um dýravelferð eftir að ég var búin að fá ansi margar upphringingar og þar á meðal með svo ljótum lýsingum að ég get varla sagt þær og það voru ekki þessar myndir sem við höfum fengið að sjá frá dýravelferðarsamtökunum, myndum sem umsagnaraðilar leyfa sér að tala um sem áróðursmyndband, ekki heimildarmyndband heldur áróðursmyndband. Þá spyr ég: Skiptir máli hvaða nafni myndbandið og myndbrotið er nefnt ef verknaður sem þar sést hefur raunverulega átt sér stað? Eða telja þeir aðilar sem tala um að þetta sé áróðursmyndband að þetta hafi bara kannski verið leikið, þetta sé bara allt í plati? En, virðulegi forseti, ég get fullvissað ykkur um að það er ekkert í plati. Það er enginn að tala um að málið sé þannig vaxið að allar hryssur þurfi að þola þær ömurlegu aðstæður og illu meðferð sem í flestum tilvikum hlýtur að liggja í hlutarins eðli. En þetta er í raun og veru skýrt brot, eins og kemur fram bæði hjá dýralæknum og fleiri aðilum, á dýraverndarlöggjöfinni. Frá því árið 2017 hefur Matvælastofnun ekki einu sinni þurft að gefa leyfi, þetta er ekki einu sinni leyfisskylt. Ég og hver sem er, við getum bara farið núna og náð í nokkrar hryssur hjá Ísteka og farið að dæla úr þeim blóði með hálfs sentímetra nálinni og tekið fimm lítra, takk fyrir, einu sinni í viku, allt að átta vikur í röð, 40 lítra.