152. löggjafarþing — 40. fundur,  23. feb. 2022.

blóðmerahald.

[16:08]
Horfa

Ásmundur Friðriksson (S):

Virðulegur forseti. Við ræðum hér blóðmerahald. Framkoma og fordæmalaus aðför Flokks fólksins að atvinnufrelsi hrossabænda eru svipaðar árásir og hvalveiðar hafa mátt þola. Ræðustóll Alþingis og fjölmiðlar hafa óspart verið notaðir til að kalla eftir jákvæðum umsögnum um frumvarpið og kasta rýrð á ævistarf blóðmerabænda. Þann glugga hafa blóðmerabændur ekki haft til að koma sínum skilaboðum á framfæri. Yfirdýralæknir sagði í útvarpsviðtali að ef einstök frávik vegna illrar meðferðar bústofns leiði til banns á heilli búgrein verði að banna allt dýrahald í landbúnaði á Íslandi.

Virðulegur forseti. Hvaða starfsemi ætlar Flokkur fólksins að stöðva næst vegna frávika sem upp koma í atvinnulífi eða mannlífi? Í því ljósi tengjum við saman sveit og borg og ætti þá ekki að banna skemmtanahald í miðborg Reykjavíkur þar sem ómannúðleg meðferð á fólki á sér stað flestar helgar? Slíkt ofbeldi setur bráðamóttöku Landspítalans á hættustig og líf okkar hinna í hættu. Í 40 ár hafa bændur á Suðurlandi haldið blóðmerar og það verið hluti af bústofni fjölskyldna í sveitum landsins athugasemdalaust. Blóðmerar ganga í haga með folöld á góðu beitilandi þar sem þau eru lyfjalaus og þykja einstök og heilnæm afurð.

Virðulegur forseti. Ekkert hefur komið fram sem gerir blóðtöku hættulega merum. Samkvæmt umsögn Matvælastofnunar er hverfandi lítið um framleiðslusjúkdóma í tengslum við blóðtökuna. Aðrir fylgikvillar eru óþekktir. Framsögumaður hefur sagt á Alþingi og í fjölmiðlum að fallþungi folalda undan blóðmerum sé langt undir því sem almennt gerist. Samkvæmt Matvælastofnun og sláturleyfishöfum er þessi fullyrðing alröng.

Virðulegur forseti. Frumvarp hv. þm. Ingu Sæland er fullt af rangfærslum. Það er aðför að réttindum bænda sem engar athugasemdir hafa fengið frá opinberum aðilum um slæma meðferð á blóðmerum. Enginn samdráttur hefur átt sér stað í útflutningi á hrossum. Rangfærslur og aðdróttanir að gjaldeyrisskapandi útflutningsgreinum eru hættulegar atvinnufrelsi bænda og skaða ímynd atvinnulífs, Alþingis og þjóðar.