blóðmerahald.
Virðulegur forseti. Ég þakka fróðlega umræðu. Hér hefur verið drepið á ýmsum hliðum málsins en það sem mig langar til að nefna fyrst og fremst, af því að það liggur algerlega fyrir, er að það er skylda okkar allra að koma fram af virðingu við skepnur. Annað er brot á lögum. Það liggur algerlega fyrir. Við erum líka samfélag sem er í sífelldu endurmati á því hvað er í lagi og hvað ekki. Við erum samfélag sem viljum taka upp umræðuna um það hvað er ásættanlegt og hvað ekki. Við erum meira að segja oftar en ekki að herða kröfurnar á okkur sjálf og segja að við viljum gera betur núna en við gerðum í fyrra o.s.frv., og ekki síður í siðferðislegum efnum. Við eigum að hafa þrek í að ræða það vegna þess að það skiptir máli í sjálfu sér, óháð því sem á við um lög um dýravelferð sem eiga alltaf að vera lög sem krefjast virðingar. Ég mun aldrei standa hér að því að tala af léttúð um dýravelferð, aldrei nokkurn tímann. Það finnst mér skipta máli að sé algerlega á hreinu.
Við þurfum hins vegar að ræða hverja þá starfsemi sem við stundum í landinu sem varðar einstaka þætti sem kunna að varða siðferðisleg álitamál. Það er sú umræða sem mér finnst mikilvægt að taka hér. Mér finnst ekki endilega sómi að því að við þurfum þar með að vega að heiðri einstakra stofnana eða einstaklinga eða starfsstétta sem vinna sína vinnu af sóma heldur þurfum við að (Forseti hringir.) gæta að því að ræða það sem hér er til umfjöllunar sem er þetta tiltekna verkefni, blóðmerahald. Við þurfum að tala um það hvort það sé partur af því sem við viljum stunda hér í landinu. (Forseti hringir.) Ég þakka virðulegum forseta fyrir þolinmæðina.