fjármálastefna 2022--2026.
Virðulegi forseti. Við greiðum hér atkvæði um rammann sem mun ríkja utan um öll umsvif hins opinbera út kjörtímabilið. Þessi rammi er ekki í takt við stjórnarsáttmála sem kynntur var hér með pompi og prakt eftir átta vikna samningaviðræður. Þetta er ekki aðeins skoðun þingmanna minni hlutans heldur skoðun fjármálaráðs. Í umsögn fjármálaráðs segir bókstaflega að samhljóm skorti milli stjórnarsáttmála og fjármálastefnu. Ljóst er af lestri fjármálastefnu að reksturinn sem ríkisstjórnin boðar næstu árin er ekki í takt við málflutninginn í dag. Það er siglt undir fölsku velferðarflaggi.