fjármálastefna 2022--2026.
Virðulegi forseti. Það er mikilvægt að fjármálastefnan og peningamálastefna Seðlabankans séu í takt, nú þegar efnahagsleg áhrif faraldursins eru á undanhaldi, til að viðhalda stöðugleika og jafnvægi í hagkerfinu. Í stefnunni er gert ráð fyrir að hámark skulda hins opinbera verði hækkað um 2% af vergri landsframleiðslu fyrir öll árin á tímabilinu og þakið verði 51,5% við lok tímabilsins og þá gerum við ráð fyrir því að skuldaaukningin stöðvist. Það er mikilvægt að falla ekki í þann freistnivanda að nýta að fullu hið innbyggða óvissusvigrúm í stefnunni til að fylgja grunngildum varfærni eins og fjármálaráð hefur lagt áherslu á. Ríkisstjórnin hefur lagt áherslu á að það sé mikilvægt að vaxa til velsældar. Það eru ýmis tækifæri til að styðja við aukna framleiðni og hagvöxt á næstu árum. Arðbærar fjárfestingar eru mikilvægar fyrir framtíðarsamkeppnisstöðu landsins og til að undirbyggja framtíðarhagvöxt. Við höldum áfram að fjárfesta í rannsóknum og þróun, stafrænum innviðum, nýsköpun og góðri grunnmenntun. Það eru ýmsar áskoranir fram undan til lengri og skemmri tíma; öldrun þjóðarinnar, velferðarmálin, húsnæðismálin og kjaramálin, verðbólgan, svo að eitthvað sé talið. (Forseti hringir.) Það er því ánægjulegt að ferðaþjónustan lætur vel af bókunum þetta árið og vegur það upp á móti innfluttri verðbólgu. (Forseti hringir.) Það er bjart fram undan á Íslandi. Við erum búin að aflétta öllum takmörkunum vegna Covid og lífið er að færast í eðlilegt horf sem er fagnaðarefni.