fjármálastefna 2022--2026.
Virðulegur forseti. Við lokasnúning og afgreiðslu á fjármálastefnu til næstu fjögurra ára vil ég bara þakka fyrir samstarf í fjárlaganefnd um undirbúning og afgreiðslu þessa máls. Fjármálastefnan er tæki sem enn er með ákveðnum hætti í þróun. Fjármálastefnan sem við ætlum nú að greiða atkvæði um er vitnisburður um að hér eigi að vera sterk og traust tök á ríkisfjármálum sem er gríðarlega mikilvægt fyrir efnahagslíf og peningastefnu í þessu landi, sem undirbyggir velferð þessa samfélags. Ég trúi því og treysti að fjármálastefnan, þær fyrirætlanir sem þar koma fram, gangi eftir. Við höfum aftur á móti reynslu af því að ýmislegt getur gerst og það sem einu sinni hefur gerst getur alltaf gerst aftur. Ég hef góða sannfæringu fyrir því að sú stefna sem við greiðum hér atkvæði um sé grunnur að sterku samfélagi og sterku efnahagslífi sem undirbyggir sterkt velferðarkerfi.