152. löggjafarþing — 40. fundur,  23. feb. 2022.

fjármálastefna 2022--2026.

2. mál
[16:30]
Horfa

Eyjólfur Ármannsson (Flf) (um atkvæðagreiðslu):

Virðulegur forseti. Þegar fjármálastefna ríkisstjórnarinnar er lesin er eitt atriði sem skín algjörlega í gegn og það er stefnuleysi núverandi ríkisstjórnar í fjármálum, stefnuleysi í skattamálum. Það er kafli sem heitir Skattstefna og ég skora á þingheim að lesa þann kafla. Það er alveg augljóst mál að þar kemur engin stefna fram. Það stendur í lögum um opinber fjármál að fjármálaráðherra eigi að leggja fram skattstefnu til samþykktar. Hún er ekki í fjármálastefnunni. Það er bjart fram undan á Íslandi og nú á föstudaginn verða vonandi síðustu höftin vegna Covid-heimsfaraldursins afnumin. Það er augljóst mál að það er bjart fram undan í efnahagslífinu af því að íslenskt samfélag er sterkt. Það er það sem mun móta stefnuna í efnahagslífinu. Það eru einstaklingarnir í samfélaginu sem munu gera það, ekki ríkisstjórnin. Það eina sem hún segir er að við eigum að vaxa út úr kreppunni. En það er ekki ríkisstjórnin sem gerir það. Það er samfélagið sem gerir það. Ef þið berið saman stjórnarsáttmálann og skattstefnuna (Forseti hringir.) þá er ekki hægt að sjá að það er sami aðilinn sem er á bak við bæði þessi skjöl.