152. löggjafarþing — 40. fundur,  23. feb. 2022.

fjármálastefna 2022--2026.

2. mál
[16:31]
Horfa

fjármála- og efnahagsráðherra (Bjarni Benediktsson) (S) (um atkvæðagreiðslu):

Virðulegur forseti. Ég fagna því að við séum á þessum tímapunkti að afgreiða fjármálastefnu fyrir kjörtímabilið. Það skiptir máli fyrir aðdraganda þeirrar vinnu sem nú stendur yfir við gerð fjármálaáætlunar sem mun koma hingað inn í þingið eftir rúman mánuð. Í þessari stefnu er skýr stefnumörkun. Hún er um að hætta skuldasöfnun ríkissjóðs, um að endurheimta jafnvægi í ríkisfjármálunum, að byggja á sterkum skattstofnum og já, hvetja, örva, skapa, gera það sem stjórnvöld geta gert til þess að endurheimta tekjur sem töpuðust í faraldrinum. Það er góð stefna og það er rétt sem kom fram að það gerist úti í samfélaginu. Það er einmitt okkar hlutverk að tryggja að aðstæður verði til staðar til þess að fólk fái notið krafta sinna og finni fyrir því að frelsi getur skapað verðmæti fyrir alla. Það getur skilað sér með kraftmiklum hætti fyrir ríkissjóð þannig að við getum staðið undir velferðinni. Eitt af því sem við erum að sjá betur og betur í þessari vinnu allri er (Forseti hringir.) að við verðum að halda áfram að skilja eftir svigrúm fyrir fjárfestingu. (Forseti hringir.) Ríkisstjórnin er í fjárfestingarátaki og við þurfum að halda því áfram. (Gripið fram í.)