fjármálastefna 2022--2026.
Virðulegur forseti. Í dag greiðum við atkvæði um fjármálastefnu sem felur í sér að raunvöxtur útgjalda á hverju ári verður gríðarlega lágur í sögulegu samhengi, fjárfestingarstig hins opinbera verður lágt í sögulegu samhengi. Þessi stefna, þetta plagg sem við erum að ræða í dag, það verður vísað til þess og það verður notað til að réttlæta gríðarlegt útgjaldaaðhald á næstu árum og þá stefnu að ríkið dragi saman seglin í staðinn fyrir að ríkið og hið opinbera og okkar sameiginlegu stofnanir, þessi lýðræðislegu tæki, séu notuð í sama mæli og þau hafa verið notuð til að takast á við þær áskoranir sem við glímum við sem samfélag. Auðvitað höfnum við þessari fjármálastefnu.