152. löggjafarþing — 40. fundur,  23. feb. 2022.

fjármálastefna 2022--2026.

2. mál
[16:33]
Horfa

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir (V) (um atkvæðagreiðslu):

Virðulegi forseti. Við í Viðreisn munum, og ég geri grein fyrir atkvæðinu hér á eftir, sitja hjá varðandi breytingartillögu en greiða síðan atkvæði gegn þessari fjármálastefnu því að við teljum hana vera óraunhæfa. Það er ákveðinn feluleikur um framtíðina og við tökum undir það sem Samtök atvinnulífsins og fleiri hafa verið að benda á, það er verið að varpa ábyrgðinni á þessari fjármálastefnu yfir á næstu ríkisstjórn, ekki á þessa ríkisstjórn heldur næstu ríkisstjórn. Tekjuhlutinn er algerlega óraunhæfur. Við tökum undir það að við þurfum að vaxa út úr vandanum, veita samfélaginu svigrúm til að vaxa. En það er ekkert sem kemur fram hjá þessari ríkisstjórn um hvernig við ætlum að vaxa út úr vandanum þegar við erum með vaxtastig í hærri hæðum núna en áður hefur verið og við erum ekki síst með sterkara gengi sem veldur því að útflutningsatvinnuvegirnir eiga afar erfitt með að hjálpa okkur að vaxa út úr vandanum.

Þessum spurningum er öllum ósvarað og þess vegna munum við segja nei við þessari fjármálastefnu. Við tökum undir það sem bent hefur verið á, það er verið að varpa ábyrgðinni yfir á næstu ríkisstjórn og næstu kynslóðir.