152. löggjafarþing — 40. fundur,  23. feb. 2022.

fjármálastefna 2022--2026.

2. mál
[16:35]
Horfa

Björn Leví Gunnarsson (P) (um atkvæðagreiðslu):

Forseti. Ég vil hafa það skýrt að ég tek undir það sem hv. þm. Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir segir hérna. Við höfnum þessari fjármálastefnu, við sitjum hjá við afgreiðslu breytingartillagna. Vandinn við þessa fjármálastefnu er einmitt, eins og komið hefur fram, að það er engin stefna. Samkvæmt lögum um opinber fjármál á að vera tekju- og gjaldastefna. Þegar lesið er á milli línanna er verið að segja að ríkisstjórnin ætli að auka skatttekjur sínar um 80 milljarða, en það er ekki útskýrt hvernig. Það er sagt að ríkisstjórnin ætli að skera niður um 120 milljarða, en það er ekki útskýrt hvernig. Það á að útskýra það mjög skýrt hvernig þetta verður gert. Ég ætla rétt að vona að það verði gert í fjármálaáætluninni, sem kemur eftir rúman mánuð, en einhvern veginn efast ég um það. Það er tilgangur fjármálastefnunnar að ríkisstjórnin útskýri hvernig hún ætlar að haga útgjalda- og tekjumálum sínum út kjörtímabilið, svona í grófum dráttum. Í staðinn er það ekkert útskýrt og það þarf að lesa inn á milli línanna hvað þetta þýðir í raun og veru. Það er óásættanlegt.