152. löggjafarþing — 40. fundur,  23. feb. 2022.

viðspyrnustyrkir.

291. mál
[16:47]
Horfa

Frsm. meiri hluta efh.- og viðskn. (Ágúst Bjarni Garðarsson) (F):

Frú forseti. Fyrir hönd meiri hluta efnahags- og viðskiptanefndar mæli ég fyrir nefndaráliti um frumvarp til laga um breytingu á lögum um viðspyrnustyrki, nr. 160/2020, framhald viðspyrnustyrkja. Með frumvarpinu er lagt til að viðspyrnustyrkjaúrræði, sem lögfest var vegna kórónuveirufaraldursins, verði framlengt óbreytt um fjóra mánuði, frá desember 2021 til og með mars 2022, en að auki er lögð til minni háttar breyting á framlengingu umsóknarfrests vegna liðinna tímabila.

Nefndin fjallaði um málið og fékk á sinn fund þá gesti sem gerð er grein fyrir í álitinu og átta umsagnir frá Alþýðusambandi Íslands, Félagi atvinnurekenda, Félag íslenskra hljómlistarmanna, KPMG Law, Samstöðuhópi einyrkja og lítilla fyrirtækja í ferðaþjónustu, Samtökum atvinnulífsins og Samtökum ferðaþjónustunnar og Viðskiptaráði Íslands. Nefndarálitið liggur frammi.

Líkt og rakið er í nefndaráliti var bent á í umsögnum til nefndarinnar að apríl hefði verið lægsti tekjumánuður ferðaþjónustufyrirtækja undanfarin ár. Því gæti verið til bóta að framlengja úrræðið út apríl í því skyni að brúa bilið þar til horfur í greininni batna. Meiri hluti nefndarinnar bendir í því sambandi á að dregið hafi úr áhrifum faraldursins og að gert er ráð fyrir að takmörkunum vegna hans verði aflétt fyrr en áætlað var. Það hefur reynst rétt en í dag lýsti ríkisstjórnin því yfir að takmörkunum verði aflétt aðfaranótt föstudags. Með það til hliðsjónar taldi meiri hlutinn að ekki væru forsendur til að framlengja viðspyrnustyrki umfram það sem lagt er til í frumvarpinu. Einnig kom fram í umfjöllun nefndarinnar að í ársbyrjun 2022 hafi ýmsum fyrirtækjum sem áttu rétt á viðspyrnustyrk samkvæmt gildandi lögum orðið ljóst að umsóknarfrestur væri liðinn og þeim láðst að sækja um styrkinn. Í því sambandi var nefndinni bent á að umsóknarferlið og sú gagnaöflun sem því fylgdi kynni að reynast minni rekstraraðilum þungbært, þ.e. aðilum sem alla jafna skila bókhaldsgögnum árlega með utanaðkomandi aðstoð. Þá kynni að vera að rekstraraðilar hefðu mögulega ruglað saman skilyrðum um lokunarstyrki og viðspyrnustyrki í einhverjum tilvikum. Þannig hefðu umræddir rekstraraðilar ekki talið sig uppfylla skilyrði viðspyrnustyrkja þegar þeir gerðu það í raun.

Með lögum nr. 2/2022 var umsóknarfrestur um viðspyrnustyrki vegna nóvember framlengdur til 1. mars 2022. Upphaflegur umsóknarfrestur um viðspyrnustyrki, þ.e. 31. desember 2021, tók mið af gildistíma ramma framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins um ríkisaðstoð til stuðnings hagkerfinu vegna yfirstandandi Covid-heimsfaraldurs, frá 19. mars 2020, sem var í gildi við gildistöku laganna. Með orðsendingu framkvæmdastjórnarinnar frá 18. nóvember 2021 var gildistími rammans framlengdur til 30. júní 2022. Þau sjónarmið sem bjuggu að baki framlengingu umsóknarfrests voru um margt þau sömu og rakin hafa verið að framan.

Meiri hlutinn bendir á að markmið þeirra styrkjaúrræða sem ráðist hefur verið í vegna heimsfaraldurs kórónuveiru er m.a. að styðja við þau fyrirtæki sem hafa verið í raunverulegum rekstrarvanda. Úrræðið var ítarlega kynnt og umsóknarleiðbeiningar birtar á vef Skattsins. Hins vegar telur meiri hlutinn að umsóknarfrestur vegna síðustu mánaða ársins 2021 hafi verið of skammur, sem getur hafa bitnað á rekstraraðilum sem hafa átt rétt á nýtingu úrræðisins, m.a. í ljósi þess að rekstraraðilar þurftu á þeim tíma að grípa til víðtækra ráðstafana vegna ákvarðana heilbrigðisyfirvalda. Því leggur meiri hlutinn til að umsóknarfrestur vegna ágúst 2021 til nóvember 2021 miðist við 30. júní 2022, til samræmis við umsóknarfrest vegna mánaðanna frá desember 2021 til mars 2022. Breytingin mun hafa áhrif á kostnað ríkissjóðs af aðgerðinni til hækkunar, en þar sem um er að ræða umsóknir sem ekki hafa skilað sér til Skattsins liggja ekki fyrir upplýsingar um viðbótaráhrifin.

Frú forseti. Að framangreindu virtu leggur meiri hluti efnahags- og viðskiptanefndar til að frumvarpið verði samþykkt með þeirri breytingu sem lögð er til í nefndarálitinu, þ.e. að umsókn um viðspyrnustyrk vegna tímabilsins ágúst 2021 til mars 2022 skal skilað eigi síðar en 30. júní 2022.

Undir álit meiri hluta efnahags- og viðskiptanefndar rita, auk þess sem hér stendur, hv. þingmenn Guðrún Hafsteinsdóttir formaður, Diljá Mist Einarsdóttir, Guðbrandur Einarsson, Hafdís Hrönn Hafsteinsdóttir og Eva Dögg Davíðsdóttir.