viðspyrnustyrkir.
Frú forseti. Ég þakka hv. þm. Þórhildi Sunnu Ævarsdóttur fyrir fyrirspurnina. Þetta er eitt af þeim styrkjaúrræðum sem verið hafa til umræðu og meðhöndlunar hjá efnahags- og viðskiptanefnd. Ég get að einhverju leyti tekið undir það og ég held að við séum öll sammála um að við viljum auðvitað sjá þessa hluti gerast hratt, en þeir þurfa jafnframt að vera vel gerðir og það þarf að vanda til verka. Við höfum verið, eins og hv. þingmaður þekkir mjög vel, að vinna vel í þessum málum eins og öðrum, kalla eftir aðilum inn á fund nefndarinnar til að heyra í þeim hljóðið og heyra þau sjónarmið sem þeir setja fram, mögulega til að bæta þetta úrræði, sem við þekkjum reyndar ágætlega, og koma með innlegg í umræðuna til að bæta málið og gera það betra. Þetta hefur vissulega tekið tíma en ég fagna því að málið sé hér komið fram. Ég ítreka það þó sem ég segi, að auðvitað má alltaf vinna hlutina betur.
Varðandi seinni spurninguna þá hef ég engar skýringar á því.