152. löggjafarþing — 40. fundur,  23. feb. 2022.

viðspyrnustyrkir.

291. mál
[17:00]
Horfa

Frsm. meiri hluta efh.- og viðskn. (Ágúst Bjarni Garðarsson) (F) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir fyrirspurnina. Ef ég skildi spurninguna rétt er hún á þann veg hvort sá sem hér stendur styðji við frekari samþjöppun innan ferðaþjónustufyrirtækja. Ég held að það megi svara því með þeim hætti að ég tel að það sé mjög mikilvægt að þau fyrirtæki sem eru starfandi búi við lífvænlegan rekstur, geti rekið sig sjálf. Ég held að það sé því miður gegnumgangandi eftir krísu sem þessa, sem og aðrar krísur, að einstaka fyrirtæki standast ekki ágjöfina og það muni jafnvel gerast eftir að þessum faraldri lýkur. Það er einmitt ástæðan fyrir því að við erum með öll þessi úrræði til staðar, til að reyna að grípa þá aðila sem hafa fundið hvað mest fyrir þessu höggi undanfarin tvö ár. Á móti get ég sagt með ferðaþjónustuna að það eru sveitarfélög og byggðir út um landið sem eru mjög háðar ferðaþjónustufyrirtækjum og atvinnulífinu þar og ég held að það sé mjög æskilegt að þau fyrirtæki standi þetta af sér. En svona heilt yfir erum við með þessum aðgerðum að reyna að grípa þá sem eru í vanda staddir. Ég held að það svari þessari spurningu ágætlega.